Fimmtudagur, 5. júní 2025
Jón Gnarr útvalinn og óseðjandi
Launahækkun Jóns Gnarr upp á 153 þúsund kr. á mánuði var sett í forgang af Kristrúnu og félögum í stjórnarmeirihlutanum. Þingfararkaup Jóns er um ein og hálf milljón á mánuði en hann vildi aukalega rúmlega 150 þúsund krónur. Undir þeim formerkjum að sumir eru jafnari en aðrir er þess freistað að keyra launahækkun Jóns í gegn á síðustu dögum þingsins.
Fyrir hvað á að hækka laun Jóns? Stutta svarið er: fyrir ekkert. Jón á að fá launahækkun fyrir að vera formaður í framtíðarnefnd. En nefndin hefur engin verkefni. Í viðtengdri frétt er snyrtilegt orðalag um opinbera nefnd til að réttlæta mútugjafir úr ríkissjóði:
Nefndin er með óljóst hlutverk, ólíkt fastanefndum þingsins, og er það nefndarinnar sjálfrar að hafa frumkvæði að þeim málum sem hún tekur til umfjöllunar og vinnslu.
Jón Gnarr er grínisti og fær 1,5 m.kr. í mánaðarkaup sem þingmaður Viðreisnar. Grínlaust vill hann 150 þúsund krónur aukalega fyrir formennsku í nefnd sem hefur ekkert hlutverk.
Víkjum þá að vinnandi fólki sem skapar raunverðmæti en ekki aulabrandara. Eiríkur heitir maður og er Ólafsson. Hann er Fáskrúðsfirðingur. Hryggstykkið í plássinu er Loðnuvinnslan sem að mestu er í eigu 350 manna samvinnufélags heimamanna. Loðnuvinnslan rekur útgerð og borgar 250 milljónir í auðlindaskatt, jafngildir 700 þúsund krónum á hvern félagsmann. Kristrún og félagar í ríkisstjórninni ætla að tvöfalda skattinn þannig að hver félagsmaður borgi 1,4 milljónir, skrifar Eiríkur í Vísisgrein fyrir fjórum dögum.
Fyrirsögnin á grein Eiríks er Hinn óseðjandi. Ríkisstjórn Kristrúnar tvöfaldar skatta á vinnandi menn til að tryggja framfærslu hinna óseðjandi útvöldu sem dýfa helst ekki hendi i kalt vatn. Þeir sitja í nefndum án verkefna á ríkistryggðum launum.
![]() |
Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)