Stoltir fánaberar, rasisti sem hrósyrði

Stórfundur gegn hælisiðnaðinum á laugardag og könnun sem sýnir 60 prósent þjóðarinnar sammála Íslandi þvert á flokka veldur usla meðal talsmanna opinna landamæra. Þingmaður Samfylkingar kallar meirihluta þjóðarinnar rasista og frá heimilishaldi Helgu Völu fyrrum Samfó-þingmanns og hælislögmanns koma sambærileg skot úr ritbyssu eiginmanns og dóttur.

Á Facebook fann tilfallandi færslu sem gefur hugboð um hvað meirihluti þjóðarinnar hugsar:

Ætli ég sé þá ekki bara rasisti?

Af því mér hugnast ekki að flytja inn glæpagengi né fólk sem aðhyllist glæpsamleg trúarbrögð. Mér hugnast ekki kvenfyrirlitning, barnabrúðkaup né kynfæralimlesting. Er ég rasisti af því að mér finnst sjálfsagt að fólk sem flyst inn í landið okkar komi með því hugarfari að aðlagast samfélaginu læri tungu og virði siði [þeirra] sem fyrir eru.

Höfundurinn játast skilgreiningu hrædda fólksins á rasisma, sem notar orðið til að löðrunga málefnalega umræðu. Það er ekki rasismi að þykja vænt um þjóðmenninguna og gjalda varhug við óheftu innflæði hælisleitenda. Rasisti verður hrósyrði.

Nokkur hundruð manns mættu á Austurvöll með þjóðfánann til að sýna væntumþykju fyrir því sem er íslenskt. Fundarmenn voru þversnið þjóðarinnar, stoltir fánaberar. 

 

 
 

Bloggfærslur 3. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband