Fimmtudagur, 26. júní 2025
Trump, valkyrjur og ættbálkar Palestínuaraba á Íslandi
Utanríkismál eru ofurviðkvæm vinstrimönnum. Afstaðan til Trump Bandaríkjaforseta er sérlega tilfinningaþrungin íslenska vinstraliðinu. Tveir af oddvitum ríkisstjórnarinnar, Katrín forsætis og Þorgerður Katrín utanríkis, fóru á Nató-fund að hylla Trump. Til að róa mannskapinn hentu þær í grein, og fengu Ingu Sæland til að ábekja. Greinin segir að við verðum áfram í Nató og varnarsamningurinn við Bandaríkin sé í fullu gildi. Stórfréttir eða þannig.
Viðkvæmni vinstrimanna í utanríkismálum á sér tvær meginskýringar. Sú fyrri er að sögulega hafa þeir alltaf verið á röngunni, studdu kommúnisma langt fram yfir síðasta söludag. Seinni skýringin er blæti vinstrimanna að bjarga heiminum. Heimsbjargaráráttu fylgir óþol gagnvart málamiðlunum sem eru ær og kýr alþjóðastjórnmála.
Í viðtengdri frétt segir að Þorgerður Katrín hafi heillast af Trump og viðbrögðum Svandísar formanns Vinstri grænna. Eitruð athugasemd:
Það er niðurlægjandi. Ekki bara fyrir konur. Ekki bara fyrir lýðræðissinna. Heldur fyrir okkur öll sem viljum að Ísland standi með mannréttindum, friði og frelsi.
RÚV er vel meðvitað um jarðsprengjusvæðið og leggur sig i líma að spilla ekki fyrir samstöðu vinstrimanna. Kristrún ræddi veður og varnarmál við Trump, segir Efstaleiti. Ekki veður í samhengi við loftslagsmál. Nei, guð hjálpi okkur, heldur veðrið á Íslandi.
Vísir sýnir ekki sömu nærgætnina og RÚV, gefur til kynna Trump-glott þegar Kristrún ræddi Úkraínu og Gasa.
Ekkert sem Ísland segir og gerir í alþjóðadeilum í Úkraínu, Gasa eða öðrum átakasvæðum breytir einu eða neinu um gang mála á erlendum vígaslóðum. En fyrir heimsbjargaráráttu íslenskra vinstrimanna skilur að feigan og ófeigan hvort atlot og orðaval séu í takt við rétttrúnaðinn. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir botnar gagnrýni á ráðherrasystur: ,,Trump brosti til Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerði fannst karlinn heillandi."
Til að milda bakslagið tilkynnir Þorgerður Katrín ættbálkasameiningu Palestínuaraba á Íslandi og flytur inn 16 einstaklinga til að komast á velferðarbeit á kostnað skattgreiðenda.
Tilfallandi fjallaði um ættainnflutning Palestínuaraba fyrir ári:
Palestínuarabi á Íslandi átti íslenska eiginkonu. Þau eru skilin. Palestínuarabinn er með umsókn hjá Útlendingastofnun um fjölskyldusameiningu. Hann á móður á lífi í Gasa og 12 systkini, segi og skrifa tólf, og vill þau öll til Íslands.
Ekki liggur fyrir hve mörg systkina Palestínuarabans eiga maka og börn. Ef þau eiga öll maka er fjöldinn kominn upp í 24 einstaklinga. Palestínuarabar í Gasa eru eitt frjósamasta samfélag í heimi, samkvæmt alþjóðlegri tölfræði.
Hver kona í Gasa á að jafnaði 3,5 börn. Ef við notum þá tölu á systkini Palestínuarabans hér á landi, og gefum okkur að þau séu öll með fjölskyldu, fáum við 42 börn.
Reikningsdæmið lítur þá svona út. Einn Palestínumaður kemur til Íslands vill í nafni fjölskyldusameiningar fá 67 skyldmenni hingað til lands.
Dæmið hér að ofan er ekki einstakt. Tilfallandi hefur áður fjallað um Palestínuaraba á Íslandi sem vildi fá hingað 21 ættmenni.
Trúlega flytur Þorgerður Katrín inn flugvélafarma af ættbálkum Palestínuaraba til að kaupa sér velvild vinstrimanna, sem eru jú áhugasamir um að skipta um þjóð í landinu. Óreiða, upplausn og átök í útlöndum verða íslenskur veruleiki. Vinstriflokkarnir kalla þetta ,,leiðréttingu" og kenna við réttlæti.
![]() |
Sagði Trump heillandi: Svandís er ósammála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)