Miđvikudagur, 25. júní 2025
Byrlunin og hnignun RÚV
RÚV er ekki sama stofnunin og hún var fyrir fáum árum. Eitt mál öđrum fremur dregur úr tiltrú á ríkisfjölmiđilinn, byrlunar og símamáliđ. RÚV hefur ekki gert grein fyrir ađkomu sinni ađ málinu og ţverskallast viđ ađ gera hreint fyrir sínum dyrum. Páll skipstjóri stefnir RÚV fyrir dómstól til ađ fá hlutlćgt mat á ţann miska sem hann varđ fyrir af hálfu starfsmanna ríkisfjölmiđilsins.
Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlađ ađ kvöldi 3. maí 2021 á heimili sínu á Akureyri. Um nóttina var kominn á dauđvagninn svokallađan á sjúkrahúsi Akureyrar. Ítrekađar lífgunartilraunir ţurfti til ađ halda skipstjóranaum á lífi. Daginn eftir var flogiđ međ Pál til Reykjavíkur ţar sem hann var međvitundarlaus til 6. maí.
Ţáverandi eiginkona Páls flaug međ honum suđur. Síđar viđurkenndi hún ađ hafa byrlađ eiginmanni sínum. Konan glímir viđ alvarleg andleg veikindi. Daginn sem ţau komu til Reykjavíkur, 4. maí, fór eiginkona skipstjórans međ síma hans á Efstaleiti, höfuđstöđvar RÚV. Á Efstaleiti beiđ sími sömu tegundar og skipstjórans. Sími RÚV, af Samsung-gerđ, var keyptur í apríl og skráđ á hann númer keimlíkt og skipstjórans. Á Efstaleiti var sími skipstjórans klónađur, afritađur, á nýjan síma RÚV. Allt var afritađ sem hćgt var ađ afrita, ekki voru valdar úr síma skipstjórans efnisatriđi sem mögulega ćttu erindi til almennings.
Ţóra Arnórsdóttir ţá ritstjóri Kveiks á RÚV veitti síma skipstjórans viđtöku og hafđi međ sér undirmann, Arnar Ţórisson. Samkomulag varđ á milli eiginkonu skipstjórans og Ţóru ađ síminn yrđi í sólarhring á RÚV.
Á ţessum tíma, voriđ 2021, var umsátursástand á Kveik og fréttastofu RÚV. Helgi Seljan var í lok mars úrskurđađur alvarlega brotlegur gegn siđareglum RÚV vegna herferđar hans í Namibíumálinu gegn Samherja. Páll skipstjóri starfađi hjá Samherja á ţessum tíma og hafđi skrifađ pistla í fjölmiđla til varnar vinnuveitanda sínu. Ţóra, ritstjóri Kveiks, komst í samband viđ eiginkonu skipstjórans á útmánuđum. Ţegar Ţóru bauđst stolinn einkasími međ gögnum er gćtu komiđ ađ notum í stríđi RÚV gegn norđlensku útgerđinni sló hún til. Ekki aftrađi ţađ Ţóru ađ í hlut átti andlega veikur einstaklingur sem framdi alvarlegt brot til ađ komast yfir símann.
Ţegar eiginkonan kom daginn eftir, eđa 5. maí 2021, til ađ fá afhentan síma eiginmannsins var skotiđ á fundi međ henni og lykilmönnum RÚV í ađgerđinni. Fundinn sátu af hálfu RÚV Ţóra Arnórsdóttir, Arnar Ţórisson pródúsent, Helgi Seljan fréttamađur og Rakel Ţorbergsdóttir fréttastjóri.
Fundurinn 5. maí sýnir yfirvegun og skipulag í ađgerđinni. Starfsmenn RÚV vita ađ handan götunnar, á Borgarspítalanum, liggur skipstjórinn međvitundarlaus og getur sér enga björg veitt. Í samráđi viđ eiginkonuna er ákveđiđ ađ símtćki skipstjórans skuli skilađ á sjúkrabeđ hans til ađ hann vćri grunlaus um ţjófnađ og afritun. Hugsunin ađ baki var ađ ef síma skipstjórans hefđi veriđ fargađ gćti hann dregiđ ţá ályktun ađ um ţjófnađ vćri ađ rćđa.
Fundurinn 5. maí var ekki upphafskaflinn í ađgerđinni gegn skipstjóranum. Eins og áđur segir vissi Ţóra í apríl ađ einkasími skipstjórans var af Samsung-gerđ og keypti slíkan síma til ađ afritun gengi greiđlega fyrir sig. Föstudaginn 30. apríl, ţrem dögum fyrir byrlun, hćtti undirmađur Ţóru á Kveik, Ađalsteinn Kjartansson, og hóf samdćgurs störf á Stundinni, sem Ingibjörg systir hann ritstýrđi. Almennt hćtta fréttamenn ekki á RÚV nema fyrir feita bita. Ađalsteinn fór ekki í vist hjá systur sinni til annars en ađ taka viđ frétt sem yrđi unnin á RÚV en birt í Stundinni og Kjarnanum.
Skipulagiđ gerđi ráđ fyrir ađ RÚV vćri ađgerđarmiđstöđin, veitti stolnum síma viđtöku, afritađi og ynni efni úr símanum. Aldrei stóđ til ađ RÚV frumbirti stafkrók úr síma skipstjórans. Stundin og Kjarninn sáu um birtingu, allt eftir fyrirfram ákveđinni ráđagerđ.
Eftir tíu daga sjúkrahúsvist er skipstjórinn útskrifađur. Hann er heima hjá sér 20. maí 2021 og fćr tvö símtöl međ 11 mínútna millibili. Klukkan 14:56 hringir Ţórđur Snćr Júlíusson ritstjóri Kjarnans. Rúmlega tíu mínútum síđar, 15:07, hringir Ađalsteinn Kjartansson blađamađur á Stundinni. Blađamennirnir tveir, hvor á sínum fjölmiđlinum, tilkynna Páli ađ ţeir hafi efni undir höndum er varđi hann og Samherja og hvort hann vilji bregđast viđ. Skipstjórinn svara fáu. Daginn eftir, snemma um morgun, birta Stundin og Kjarninn efnislega sömu fréttina, um meinta skćruliđadeild Samherja er hafi ţađ hlutverk helst ađ sverta orđspor blađamanna. Í kjölfariđ fara fréttamenn RÚV á stúfana, reka hljóđnemann uppi í ţingmenn, ráđherra og álitsgjafa til ađ fá fordćmingu á Samherja.
RÚV-ađgerđin gegn Páli skipstjóra Steingrímssyni voriđ 2021 er skefjalaus misnotkun á fjölmiđlavaldi. Lögreglurannsókn stađfesti ađ lögbrot voru framin. En ţar sem sönnunargögnum var eytt tókst ekki sanna hvađa blađamađur framdi tiltekin afbrot. Rannsókn á hlut blađamanna var hćtt síđast liđiđ haust en heldur áfram gagnvart eiginkonunni sem játađi byrlun og stuld.
Lögreglurannsóknin sýndi fram á margvísleg samskipti blađamanna, einkum Ţóru, viđ veiku konuna. Ţau gögn verđa lögđ fram, útskýrđ og rćdd, í málaferlum skipstjórans gegn RÚV.
![]() |
Páll stefnir RÚV út af byrlunarmálinu |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)