Dómsmál: nýtur BDSM verndar sem kynhneigð?

Í gær var réttað yfir tilfallandi í héraðsdómi Reykjavíkur. Lögreglustjórinn í Reykjavík ákærði tilfallandi fyrir ,,hatursorðræðu." Tekist var á um hvort BDSM-kynlíf njóti lagaverndar á þeim forsendum að vera kynhneigð og hvort þeir sem það stunda séu jaðarsettur minnihlutahópur er skuli hafa aðgang að börnum í leik- og grunnskólum.

Forsaga málsins er tilfallandi blogg í september fyrir tveim árum. Inngangurinn að blogginu er svohljóðandi:

Í grunnskólum Reykjavíkur er BDSM-kynlífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennsluefni í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur og sjá um þjálfun og kennslu.

Samtökin 78 kærðu bloggið til lögreglu. Í framhaldi gefur lögreglan út ákæru á hendur tilfallandi fyrir brot á grein 233 a. hegningarlaga:

Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. (feitletr. pv)

Saksóknarinn í gær, rúmlega þrítug kona, staðhæfði að tilfallandi hefði hæðst að, rógborið og smánað viðkvæman minnihlutahóp og ætti að sæta refsingu fyrir, sekt eða fangelsisvist. Nánar tiltekið í ákæruskjali eru eftirfarandi efnisgreinar sagðar hæðni, rógur og smánun:

1. Samtökin 78 eru regnhlífarsamtök og lífsskoðunarfélag fullorðinna sem áhugasamir eru um klám, kynlíf, kynjaveröld og tælingu barna.

2. Kennsluefnið er tæling dulbúin sem upplýsingar. Meðfædd blygðunarsemi barna er skipulega brotin niður. Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi og það jafnvel ofbeldiskynlífi - BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfsmynd og talin trú um að þau séu mögulega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óörugg eru síður í stakk búin að veita viðnám fullorðnum með eitthvað misjafnt í huga. Út á það gengur tælingin.

Tilfallandi gaf skýrslu fyrir dómi í gær og svaraði spurningum saksóknara, dómara og verjanda. Enginn fjölmiðill sýndi málinu þann áhuga að mæta í réttarsal. Atlaga ríkisvaldsins að tjáningarfrelsinu þykir fjölmiðlum ekki fréttnæm. Tilfallandi svaraði spurningum réttarins eftir bestu samvisku, sagðist standa við orð sín. Bloggið var skrifað til að bera hönd fyrir höfuð barna í leik- og grunnskólum sem eiga ekki að þurfa að sitja undir boðskap Samtakanna 78. Tilfallandi gerir engar athugasemdir við að fullorðið fólk hafi félagsskap um sín áhugamál. Sum áhugamál fullorðinna eiga aftur ekkert erindi til barna.

Saksóknari tók annan pól í hæðina. Hann sagði orðrétt að ,,miðaldra karlar sem brjálast við lyklaborðið" verði að hljóta makleg málagjöld, fjárútgjöld og fangelsisvist. Eðlilega gerði verjandi athugasemd við orðfæri saksóknara.

Tilfallandi gengst við að vera miðaldra karl en telur ekkert ,,brjálæðislegt" við þá skoðun að kynin séu aðeins tvö og ekki sé hægt að fæðast í röngum líkama. Saksóknari lögreglustjórans í Reykjavík er annarrar meiningar, sem ekki er tiltökumál. Verri er aftur sú krafa saksóknara að tilfallandi sæti refsingu fyrir að andmæla boðskap Samtakanna 78 í leik- og grunnskólum. Maður bindur vonir við að dómari meti málsatvik tjáningarfrelsinu í hag. Illa er komið fyrir frjálsri orðræðu ef lögreglan ritstýrir með ákæruvaldi og dómstólar úrskurði atferlið lögmætt.

Lesendur hafa með framlögum stutt tilfallandi að halda fram sjónarmiðum og skoðunum sem ekki eiga upp á pallborðið hjá ráðandi öflum. Hjartans þakkir. Það er hvetjandi að vita af fólki sem ekki er sama um hvert horfir með málfrelsið í landinu.

 


Bloggfærslur 13. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband