Laugardagur, 31. maí 2025
Bloggari, dómstólar og trúverðugleiki blaðamanna
Í landsrétti í gær sagði Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns að tilfallandi bloggari hefði vegið að trúverðugleika blaðamannsins með ítrekuðum bloggfærslum um byrlunar- og símamálið. Gunnar Ingi lögmaður nefndi trúverðugleika Aðalsteins ekki einu sinni í ræðu sinni heldur þrisvar sinnum. Höfuðsynd tilfallandi er að skrifa um starfshætti blaðamanna og fjölmiðla sem má ekki afhjúpa.
Tilfallandi bloggari var í landsrétti og hlustaði á lögmanninn krefjast uppreist æru Aðalsteins og að dómstólar verndi trúverðugleika blaðamanna.
Trúverðugleika öðlast menn með verkum sínum. Trúverðugur smiður skilar af sér vandaðri vinnu, ekki hrákasmíði. Trúverðugur skipstjóri skilar mannskap og afla í höfn og hefur í heiðri skráðar og óskraðar reglur um samskipti við áhöfn og útgerð. Sama gildir um blaðamenn. Þeir skila af sér fréttum sem halda máli og eru unnar samkvæmt viðurkenndum reglum starfsgreinarinnar - blaðamennsku. Þar brást Aðalsteinn, ekki á lítilfjörlegan hátt heldur alvarlega og yfir langan tíma.
Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað mánudagskvöldið 3. maí 2021 og var ekki hugað líf þá um nóttina. Á meðan hann var meðvitundarlaus í öndunarvél var síma hans stolið og færður til afritunar í höfuðstöðvar RÚV á Efstaleiti. Þar tók við síma skipstjórans Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks sem hafði til reiðu samskonar síma og skipstjórans, af Samsung-gerð. Á RÚV vissu menn með fyrirvara að sími skipstjórans væri væntanlegur.
Aðalsteinn Kjartansson var undirmaður Þóru á Kveik. Þrem dögum fyrir byrlun, föstudaginn 30. apríl 2021, skipti Aðalsteinn óvænt um vinnustað, fór af RÚV til systur sinnar Ingibjargar ritstjóra Stundarinnar. Einsdæmi er að fréttamenn RÚV skipti um vinnustað í hádeginu. Eitthvað bjó að baki skyndilegum vistaskiptum blaðamannsins.
Eftir afritun síma skipstjórans á RÚV voru tvær samhljóða fréttir skrifaðar um meinta ,,Skæruliðadeild Samherja". Þær birtust samtímis morguninn 21. maí 2021 í Stundinni, með Aðalstein sem skráðan höfund, og í Kjarnanum, merkt þeim Þórði Snæ Júlíussyni og Arnari Þór Ingólfssyni. Skipulag var að baki - engir aðrir fjölmiðlar en Stundin og Kjarninn voru með fréttina.
RÚV hafði heimildina, síma skipstjórans, undir höndum en birti ekkert. Það þekkist ekki á byggðu bóli, þar sem blaðamennska er stunduð, að einn fjölmiðill afli gagna, með byrlun, stuldi og afritun, en framselji fréttirnar til óskyldra fjölmiðla. Þessi séríslenska blaðamennska brýtur landslög og er ósamrýmanleg skráðum og óskráðum reglum starfsgreinarinnar.
Tilfallandi bloggari hóf að skrifa um byrlunar- og símamálið í nóvember 2021. Skömmu síðar birtu þeir Aðalsteinn og Þórður Snær samtímis þann 18. nóvember (aftur skipulag og samráð) greinar í Stundinni og Kjarnanum þar sem bloggari var sagður fleipra og setja á flot samsæriskenningar. Fleiprið var ekki meira en svo að þrem mánuðum síðar fengu Aðalsteinn, Þóra, Þórður Snær og Arnar Þór stöðu sakborninga í lögreglurannsókn. Rannsókn var hætt á blaðamönnum, ekki felld niður, síðast liðið haust með þeirri skýringu lögreglu að gögnum var eytt og blaðamenn voru ósamvinnuþýðir. Málið er varðar byrlara skipstjórans er enn opið og til rannsóknar.
Ítrekað hefur verið skorað á Aðalstein og félaga að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa málsaðild. Aldrei hafa þeir komið til dyranna eins og þeir eru klæddir heldur boðið upp á yfirklór og ósannindi - t.d. að þeir hafi aldrei verið í samskiptum við byrlara skipstjórans, sem var þáverandi eiginkona hans. Síðasta tilraun blaðamanna að hvítþvo sig var gerð síðast liðið haust. Aðalsteinn og Arnar Þór skrifuðu leiðara í Heimildina. Tilfallandi tók saman efnisatriði sem þeir sópuðu undir teppið:
1. Aðalsteinn tilkynnti á Facebook starfslok á RÚV/Kveik þrem dögum fyrir byrlun Páls skipstjóra Steingrímsson, eða 30. apríl 2021. Aðalsteinn hætti fyrir hádegi á RÚV en var kynntur sem nýr liðsmaður á Stundinni eftir hádegi sama dag. Einsdæmi er að blaðamaður skipti um vinnustað í hádeginu.
2. Páli skipstjóra var byrlað kvöldið 3. maí heima hjá sér á Akureyri. Um nóttina varð að lífga hann við með til þess gerðum tækjum. Hann var tæknilega dauður um stund, áður en lífgunartilraunir báru árangur. Flogið var með hann meðvitundarlausan á gjörgæslu Landsspítalans um hádegisbil daginn eftir. Síðdegis sama dag, 4. maí 2021, fer þáverandi eiginkona skipstjórans með síma hans yfir götuna, Bústaðarveg, sem liggur á milli spítala og RÚV á Efstaleiti. Á RÚV tekur á móti henni Arnar Þórisson framleiðslustjóri á Kveik. Þau setjast inn á skrifstofu, Arnar fer fram og sækir yfirmann sinn, Þóru Arnórsdóttur. Þau þrjú fara á aðra skrifstofu þar sem þriðji RÚV-maðurinn bíður. Hann tekur við símanum úr höndum Þóru. Daginn eftir fær konan síma skipstjórans afhentan á ný og skilar honum á sjúkrabeð Páls, sem var enn meðvitundarlaus. Skipulagið er byrla, stela, afrita og skila.
3. Fyrir byrlun, eða í apríl 2021, var Þóra búin að kaupa Samsung-síma, samskonar og Páls skipstjóra og valdi á hann símanúmer sem var það sama og á síma skipstjórans, nema síðasti tölustafurinn, 680 2140, en númer Páls var 680 214X. Úr afritaða símanum á RÚV með númerið 680 2140 voru einkagögn Páls send á Kjarnann og Stundina, m.a. skjáskot sem voru tekin af samskiptum skipstjórans. Skjáskotin voru notuð til að myndskreyta. Sjálfar fréttirnar voru að öllum líkindum skrifaðar á RÚV og sendar með tölvupósti á Stundina og Kjarnann til birtingar.
4. Veturinn og vorið 2021 voru eiginkonan og Páll skipstjóri í skilnaðarferli. Skilnaðarlögmaður konunnar var Lára V. Júlíusdóttir. Í rannsóknagögnum lögreglu er tölvupóstur frá konunni dagsettur 3. október 2021. Viðtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir, Þóra Arnórsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður og fyrrum sakborningur. Textinn:
Sæl Lára.
Ég gef hér með Þóru Arnórsdóttur og Aðalsteini Kjartanssyni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.
Dagsetningin, 3. október 2021, er mikilvæg. Búið var að boða konuna í fyrstu yfirheyrslu, sem fór fram tveim dögum síðar. Konan átti tvo síma, enda talar hún um ,,símkortin" í tölvupóstinum. Augljóst er af samhenginu að um er að ræða svar konunnar við tilmælum um að hún veiti aðgang að símkortum sínum, sem geyma samskiptaupplýsingar. Hvers vegna vildu blaðamenn komast í einkagögn konunnar ef hún var þeim ókunn og óviðkomandi?
5. Áður en konan veitti blaðamönnum aðgang að símkortunum á skrifstofu Láru var Þóra Arnórsdóttir í reglulegu sambandi við konuna, samkvæmt símtalaskrá í gögnum lögreglu. Þann 24. ágúst 2021 töluðu þær saman í átta skipti. Hluti samskiptanna er í sms-skeytum. Þar ráðleggur Þóra konunni að ,,breyta ÖLLUM lykilorðum alls staðar." Þá fer Þóra fram á að konan afhendi ónafngreindum manni einkasíma sinn. Þóra skrifar:
Hann vill helst ekki hittast (mjög varkár maður, skiljanlega) en spyr hvort þú treystir honum fyrir símanum einn dag?
Leiðari Aðalsteins og Arnars Þórs nefnir ekkert af atriðum 1.- 5. hér að ofan. Fyrstu þrjú atriðin lúta að undirbúningi og framkvæmd tilræðisins gegn Páli skipstjóra. Seinni tvö snúa að viðbrögðum fyrrum sakborninga eftir að lögreglurannsókn hefst. Atriði 2.- 5. sýna veruleg tengsl við andlega veika konu sem byrlaði eiginmanni sínum, stal síma hans og færði blaðamönnum.
Með þögn sinni um þessi efnisatriði viðurkenna tvímenningarnir að þeir hafa ekki frásögn sem rímar við þekktar staðreyndir úr málsgögnum lögreglu.
Af upphaflegu sakborningum í byrlunar- og símamálinu starfar Aðalsteinn einn enn á fjölmiðli. Þóra var flutt yfir á Landsvirkjun, Þórður Snær og Arnar Þór eru komnir á ríkisspena Samfylkingarinnar, eru starfsmenn þingflokksins. Og nú vill Aðalsteinn að landsréttur endurreisi orðspor og trúverðugleika hans sem blaðamanns. Sorrí Steini, sá strætisvagn keyrði fyrir björg - með sjálfan þig undir stýri.
Raunverulegur tilgangur Aðalsteins með dómsmálinu er að gera tilfallandi bloggara dýrkeypt, mælt í krónum og aurum, að afhjúpa vinnubrögð Aðalsteins og félaga í byrlunar- og símamálinu.
![]() |
Ummælin séu tilhæfulaus og tilbúningur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)