Laugardagur, 3. maí 2025
Styđur Ţorbjörg ráđherra rannsókn á Stefáni útvarpsstjóra?
Dómsmálaráđherra, Ţorbjörg Sigríđur, segir brýnt ađ rannsaka 13 ára gamalt njósnamál sem Helgi Seljan og RÚV gerđu ađ stórmáli í vikunni. Dómsmálaráđherra gefur ekki út yfirlýsingu um rannsókn á ađkomu fjölmiđla og blađamanna í byrlunar- og símamálinu. Í báđum málum koma viđ sögu fyrrum lögreglumenn, óbreyttar löggur í njósnamálinu. Stefán Eiríksson fyrrum lögreglustjóri í Reykjavík og núverandi útvarsstjóri tengist byrlunar- og símamálinu.
Tilfallandi bloggađi um njósnamál Helga S. og RÚV:
Njósnir eru alvarlegt mál, byrlun og gagnastuldur alvarlegri. Ţrettán ára njósnamál hallar sér ađ sagnfrćđi; fjögurra ára byrlunar- og símamál, sem enn er í rannsókn, er fréttamál. Skiljanlega velur Helgi Seljan sér viđfangsefni í takt viđ hagsmuni sína.
Dómsmálaráđherra er ţeirrar skođunar sagnfrćđirannsókn á löngu fyrndu njósnamáli sé mál málanna. Faglegur ráđherra myndi telja brýnna ađ komast til botns í byrlunar- og símamálinu ţar sem fjölmiđlar, međ RÚV í fararbroddi, misnotuđu vanheila konu til óhćfuverka.
Brotaţolinn í byrlunar- og símamálinu, Páll skipstjóri Steingrímsson, leitađi til alţingis um ađ fá ađför fjölmiđla ađ heilsu hans og einkalífi upplýsta. Í frétt Morgunblađsins segir ađ starfsmenn RÚV
hafi afritađ símann eftir ađ fyrrverandi eiginkona hans kom tćkinu í Efstaleiti. Ţá rekur hann hvernig ţeir fjölmiđlamenn sem höfđu stöđu grunađra í sakamálarannsókn sem af málinu leiddi, auk Stefáns Eiríkssonar, útvarpsstjóra og fyrrverandi lögreglustjóra í Reykjavík, töfđu rannsókn málsins, sem ađ lokum olli ţví ađ lögregla lét ţađ niđur falla.
Sé Ţorbjörgu dómsmálaráđherra annt um orđspor lögreglunnar ćtti hún ađ hvetja til rannsóknar á fyrrum lögreglustjóra í Reykjavík og tilburđi hans ađ tefja lögreglurannsókn á sakamáli. Óbreyttar löggur og gamalt njósnamál er eitt, allt annađ og stćrra er lögreglustjóri og vafasöm embćttisfćrsla hans í sakamáli sem enn er til rannsóknar.
Dómsmálaráđherra er líklega ekkert annt um orđspor lögreglunnar. Annađ hangir á spýtunni. Ţorbjörg ráđherra tekur ađ sér aukahlutverk í RÚV-leikriti ađ ţyrla upp moldviđri vegna 13 ára njósnamáls til ađ draga athyglina frá byrlunar- og símamálinu.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alţingis er međ ósk Páls skipstjóra um rannsóknarnefnd til međferđar. Ţorbjörg ráđherra hlýtur ađ styđja sanngjarna ósk skipstjórans - ef hún telur ađ réttlćti skipti máli á Íslandi. Dómsmálaráđherra án réttlćtiskenndar er ómerkilegt yfirvald.
![]() |
Mikilvćgt ađ rannsaka ađkomu lögreglumannanna |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)