Sema Erla, Hamas og Íslandsbanki

Sema Erla Serdaroglu rekur samtökin Solaris og safnaði í fyrra 93 milljónum króna í þágu Palestínuaraba. Grunur er um peningaþvætti og rannsakar lögreglan málið. Tilfallandi sagði frá greinargerð ríkissaksóknara:

Markmið Solaris var að safna 50 milljónum króna. Söfnun hófst 7. febrúar 2024 lauk formlega 4. mars sama ár og höfðu þá safnast 50 milljónir króna. Í rökstuðningi ríkissaksóknara til lögreglunnar, um að sakamálarannsókn skuli haldið áfram, kemur fram að tugir milljóna króna hafi flætt inn á reikning Solaris í vikur og mánuði eftir að söfnun lauk.

,,Fram til 4. september 2024 söfnuðust 93.338.100 kr.," segir í greinargerðinni. Hvaðan komu rúmlega 43 milljónir króna inn á reikning Solaris, hálfu ári eftir að formlegri söfnun lauk og 50 milljón kr. markinu var náð? Allir sem þekkja til fjársafnana af þessum toga vita að eftir að söfnun lýkur kemur sáralítið ef nokkuð til viðbótar inn á söfnunarreikning. Í greinargerð ríkissaksóknara segir að ,,sætir það furðu" að Solaris hefði ,,viðvarandi innstreymi fjármagns."

Viðskiptablaðið skrifar frétt um að Sema Erla sé stórkaupandi hlutafjár Íslandsbanka í nýlegu útboði, keypti fyrir hámarksfjárhæð, 20 milljónir króna.

Í blogginu, sem vitnað er í hér að ofan, segir:

Glæpahópar og hryðjuverkasamtök nota gjarnan góðgerðar- og mannúðarsamtök til að þvætta peninga. Söfnun á peningum frá almenningi er notuð til að gera illa fengið fé hreint. Ólögmætir peningar fara inn á reikninginn en út koma peningar sem hægt er að koma í umferð í þágu málefna á skjön við lög og reglur.

Í hnotskurn: Sema Erla er undir lögreglurannsókn vegna gruns um peningaþvætti. Hún kaupir fyrir 20 milljónir hlut í Íslandsbanka á eigin kennitölu. Í útboðinu er vitað af kennitölusöfnun fjársterkra aðila.

Fjármálastofnanir eru lykilaðilar í peningaþvætti.

 


Bloggfærslur 29. maí 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband