Þriðjudagur, 13. maí 2025
Óttinn við Glæpaleiti: ólík meðferð á Útvarpi Sögu og RÚV
Útvarp Saga segist hafa fengið sömu gögn og Helgi Seljan á RÚV gerði frétt um og varðar gagnaleka frá embætti héraðssaksóknara, áður sérstöku saksóknara. Um er að ræða gögn úr rannsóknum hrunmála 13 ára og eldri.
Nú er ekki hægt að fullyrða að um sömu gögn sé að ræða en þau eru í öllu falli sambærileg, samkvæmt frásögn Útvarps Sögu. Viðbrögð lögreglu við ólögmætum gögnum í húsakynnum Útvarps Sögu voru harkaleg. Í frétt á Útvarpi Sögu er sagt
að lögreglan framkvæmdi ólögmæta húsleit á Útvarpi Sögu á sínum tíma án húsleitarheimildar eftir að stöðin birti lítinn hluta af þeim gögnum sem vörpuðu ljósi á spillingu tengda bankahruninu 2008. Allar tölvur stöðvarinnar voru afritaðar og lagt hald á tölvubúnað. Tölvunum var skilað eftir nokkurt þref því lögreglan neitaði því að hafa tölvubúnaðinn undir höndum. Þegar tölvunum var loks skilað kom í ljós að gögn voru horfin sem tengdust spillingu í banka og fjármálakerfinu. Útvarp Saga kærði heimildarlausa húsleit og var þeirri kæru vísað frá og síðan var kært til ríkissaksóknara sem svaraði ekki erindi Útvarps Sögu.
Í báðum tilfellum er um að ræða fjölmiðla, ólíka að stærð og umfangi, en engu að síður fjölmiðla og þeir eru jafnir að lögum. Útvarp Saga er með gögn undir höndum úr hrunmálum, sem lögregla telur illa fengin. Lögreglan gerir húsrannsókn og haldleggur ,,allar tölvur stöðvarinnar." Ekkert slíkt gerist í tilfelli RÚV. Hver er munurinn? Jú, RÚV er ríki í ríkinu en Útvarp saga lítill einkarekinn miðill.
Í viðtengdri frétt segir frá bréfi dómsmálaráðherra til héraðssaksóknara þar sem óskað er eftir upplýsingum um meðferð gagna embættisins. Mun fjölmiðlaráðherra, Logi Einarsson, senda bréf á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og spyrja hvernig háttar með viðtöku RÚV á stolnum gögnum? Nei, vitanlega ekki. Verður gerð húsrannsókn á RÚV til að upplýsa hver gögnin eru og hvaðan þau eru fengin? Nei, ekki þegar RÚV á hlut að máli. Önnur sjónarmið gilda um RÚV en Útvarp Sögu þótt sama meinta afbrotið sé til rannsóknar.
Gagnalekamálið er 13 ára gamalt. Málið snýst um gögn sem urðu til hjá sérstöku saksóknara vegna hrunmála og hvað varð um þau. Yngra og mun alvarlegra mál er byrlunar- og símamálið. Það hófst vorið 2021 og er enn í rannsókn.
Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað 3. maí 2021. Ítrekað varð að gefa honum rafstuð um nóttina til að hann héldist á lífi. Á meðan hann var í gjörgæslu var síma hans stolið til afritunar á RÚV. Undirbúningur var að málinu af hálfu RÚV; á Efstaleiti beið sími samskonar og skipstjórans. Fréttir með vísun í efni símans birtust ekki á ríkismiðlinum heldur voru þær fluttar með leynd yfir á Stundina og Kjarnann til birtingar. Samráð og skipulag um ólögmæta háttsemi, byrlun og gagnastuld, liggur fyrir.
Gerði lögreglan húsleit á Efstaleiti? Var afritunarsíminn haldlagður? Tölvur starfsmanna? Nei, alvarlegur glæpur var framinn, en tekið var með silkihönskum á aðgerðamiðstöðinni, RÚV.
Óttinn við Glæpaleiti skapar tvöfeldni í réttarríkinu. Við grun um lögbrot er einn mælikvarði lagður á einkarekna fjölmiðla, eins og Útvarp Sögu, en allt annar á RÚV. Ríkisfjölmiðillinn fær í friði að höndla með stolin gögn, jafnvel þótt byrlun sé undanfari þjófnaðar. Fréttamenn RÚV ganga á lagið, telja sér óhætt að brjóta landslög. Er það svona samfélag sem við viljum búa í?
![]() |
Þorbjörg óskar eftir upplýsingum um gagnastuld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)