Laugardagur, 22. mars 2025
Leki Kristrúnar er ástćđa hegđunar Ásthildar Lóu
Ólöf Björnsdóttir, konan sem upplýsti 35 ára gamlar samfarir barnamálaráđherra, ţá 22 ára, og 15 ára stráks, lagđi sig í líma ađ Kristrún forsćtisráđherra fengi ein upplýsingarnar beint frá sér augliti til auglitis. Ólöf vildi ekki básúna máliđ um borg og bý. Hún skrifađi fáorđan tölvupóst, til ađ ekki yrđi til neitt skriflegt um málsástćđur sem gćti fariđ á flakk í stjórnarráđinu. Tölvupóstur Ólafar er svohljóđandi:
Góđan daginn, ég biđ um stuttan fund međ Kristrúnu Frostadóttur, en ţađ varđar Ásthildi Lóu Ţórsdóttur, ţađ er í góđu lagi ađ hún sitji líka fundinn, ef Kristrún vill ţađ. Liggur á.
Ólöf útskýrir í viđtali á RÚV ađ henni hafi ofbođiđ ađ Ásthildur Lóa vćri barnamálaráđherra og vildi vekja athygli forsćtisráđherra á fortíđ ráđherra ćskunnar. Nú má hafa margar skođanir á samförum 23 ára og 15 ára og ein ţeirra er ađ ţćr séu ekki tilhlýđilegar. Ólöf brást ekki viđ fyrr en Ásthildur Lóa varđ barnamálaráđherra og vildi ađ oddviti ríkisstjórnarinnar yrđi upplýstur. Kröfur um ađ Ólöf hefđi átt ađ fyrirgefa Ásthildi Lóu bernskubrekin koma einkum frá fólki sem ţekkt er af öđru en fyrirgefningarvilja.
Kristrún forsćtisráđherra bauđ Ólöfu ekki á sinn fund. Hún lét ađstođarmann sinn, sem hafđi heitiđ Ólöfu fullum trúnađ, leka upplýsingunum til ađstođarmanns Ásthildar Lóu. Ţađ er hrein og klár pólitík og hreint og klárt trúnađarbrot. ,,Ég lít algjörlega á ţetta sem trúnađarbrest," segir Ólöf í viđtali á Vísi.
Í framhaldi lekans gerir Ásthildur Lóa Ólöfu heimsókn klukkan tíu ađ kveldi og fer ađ stćla viđ uppljóstrarann. Kristrún viđurkennir ađ sú heimsókn sé ekki verjandi. Heimsóknin er ţó bein afleiđing af lekanum frá skrifstofu forsćtisráđherra. Enginn leki, engin ókurteis heimsókn. Augljóst er af orđalagi tölvupóstsins ađ Ólöf seldi Kristrúnu sjálfdćmi um hvort Ásthildur Lóa sćti fundinn sem óskađ var eftir. Enginn fundur var haldinn međ Ólöfu. Kristrún lét á hinn bóginn leka trúnađarpósti Ólafar til Ásthildar Lóu. Uppljóstrarinn Ólöf var ekki spurđ.
Í viđtengdri frétt segist Kristrún ekki bera ábyrgđ á hegđun Ásthildar Lóu. En án lekans frá skrifstofu Kristrúnar hefđi Ásthildur Lóa ekki sýnt af sér ţá hegđun sem Kristrún játar ađ sé óverjandi. Ábyrgđ Kristrúnar er augljós. Forsćtisráđuneytiđ lak trúnađarupplýsingum sem voru tilefni og forsenda fyrir óviđfelldinni kvöldheimsókn barnamálaráđherra á heimili uppljóstrara.
Hér er á ferđinni alvarlegt trúnađarbrot forsćtisráđherra gagnvart almennum borgara sem vildi persónulega koma upplýsingum til ćđsta handhafa framkvćmdavaldsins um málefni fagráđherra. Forsćtisráđherra brást trausti, tók pólitíska hagsmuni fram yfir vandađa stjórnsýslu.
Ásthildur Lóa hefur axlađ pólitíska ábyrgđ. Kristrún forsćtisráđherra neitar ađ horfast í augu viđ sína ábyrgđ.
![]() |
Hegđun Ásthildar ekki á ábyrgđ Kristrúnar |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |