Trump-friður í Gasa en fáir fagna

Líkur eru á friði í Gasa eftir tveggja ára stríð Ísraela við Hamas-hryðjuverkasamtökin í kjölfar fjöldamorðanna 7. október 2023. Die Welt segir  Trump forseti sæki miðausturlönd heim næstu daga og verði viðstaddur tímamótin. Fáir í vestrinu fagna væntum stríðslokum. Tilfallandi skrifaði um friðaráætlun Bandaríkjaforseta:

Friðaráætlunin gerir ráð fyrir afvopnun Hamas og sakaruppgjöf til Hamas-félaga er játa friði. Gert er ráð fyrir alþjóðlegri uppbyggingu í Gasa er miði að velferð íbúanna og varanlegum friði við Ísrael.

Friðaráætlunin er í 20 liðum. Í framkvæmd verður Gasa nýlenda á forræði Bandaríkjanna til að byrja með. Í fyllingu tímans gæti heimastjórnin á vesturbakkanum fengið hlutverk á Gasa og yrði það vísir að sjálfsstjórnarríki araba er kenna sig við Palestínu. Fyrsti liður friðaráætlunarinnar tekur af öll tvímæli um forsendurnar. Þar segir að hvorki skuli þrífast á Gasa róttækni né hryðjuverkamenning er ógni grannríkjum. Innviðir til hryðjuverka s.s. neðanjarðargöng verða aflagðir. Hryggð verður í Evrópu yfir frjálsri Palestínu sem ekki er í færum að fremja þjóðarmorð á gyðingum.

Konstantin Kisin útskýrir í stuttu máli hvers vegna menn stökkva ekki hæð sína í gleði yfir líklegum stríðslokum. Kjarninn í máli Kisin er að vestrænir stuðningsmenn Hamas gráta það mjög að hryðjuverkamenn gefi frá sér það markmið að útrýma gyðingum.

Hamas hóf stríðið 7. október 2023 með fjöldamorðum á Ísraelum og gíslatöku. Í tvö ár nota hryðjuverkamenn Hamas almenning í Gasa sem mannlega skildi. Herfræði Hamas, með lygum um þjóðarmorð á Palestínumönnum, var að vestrið myndi leggjast af fullum þunga á Ísrael að hætta hernaðaraðgerðum á Gasa. Víða í Evrópu var tekið undir með Hamas, stjórnvöld í nokkrum ríkjum viðurkenndu hryðjuverkasamtökin sem fullgilda meðlimi alþjóðasamfélagsins. Sjálfstortíming Evrópu er komin á það stig að álfan tekur i faðm sér hugmyndafræði er fyrirlítur lýðræði, mannréttindi og almennt siðferði.

Þrátt fyrir stuðning frá Evrópu fór Hamas halloka í stríðinu. Ísrael lét vestrið ekki kúga sig til að hætta hernaði gegn hryðjuverkum. Trump beið átekta og þegar aðstæður voru réttar lagði hann fram friðaráætlun, sem í raun er uppgjöf Hamas.

Enn er of snemmt að segja til um hvort vatnaskil hafi orðið í deilu Íraels við arabíska nágranna sína. Sú deila er kjarni Gasa-stríðsins. Til skamms tíma var Hamas verkfæri herskárra múslímaríkja að útrýma Ísraelsríki. Kannski að Trumpfriður í Gasa marki tímamót.

Að fáir í vestrinu fagni friði í blóðugu stríði segir háskalega sögu um menningarástand vestursins. Ísrael er hatað í vestrinu hvað heitast og innilegast af vinstrimönnum. Rætur hatursins eru tvístofna. Í fyrsta lagi sjálfshatur á gyðinglegum kristnidómi, sem er undirstaða vestrænnar menningar. Í öðru lagi rótgróið gyðingahatur sömu ættar og leiddi til helfararinnar fyrir miðja síðustu öld. Eitur í beinum vinstrimenningar samtímans er velgengni Ísraelsríkis, sem er eina þjóðríkið í miðausturlöndum er státar af vestrænu lýðræði og mannréttindum.

Það eykur líkur á varanlegum friði að múslímaríkin í miðausturlöndum virðast snúa baki við fyrri stefnu um að útrýma Ísrael og hallast nú að samstarfi fremur en hernaði og hryðjuverkum. Allir friðelskandi ættu að fagna. 


mbl.is Ísrael og Hamas ná saman um friðarsamkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. október 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband