Laugardagur, 18. janúar 2025
Þórður Snær selur þingsætið
Þórður Snær Júlíusson fyrrum ritstjóri Kjarnans og Heimildarinnar fékk kjör sem þingmaður Samfylkingar við síðustu þingkosningar. Þrátt fyrir listakosningar er þingsætið þeirra sem það hljóta en ekki flokksins sem fær atkvæði kjósenda. Í þeim skilningi er þingsæti eign þingmanna, verður ekki af þeim tekið.
Í kosningabaráttunni var Þórður Snær afhjúpaður sem netníðingur. Hann skrifaði ljótt um menn, einkum konur, undir dulnefninu þýska stálið. Fyrsta kastið ætlaði ritstjórinn og þingmannsefnið að sitja af sér upprifjunina og gaslýsa sig frá níðingsskap þýska stálsins. Er kvenhatrið beit í fylgi Samfylkingar sá Þórður Sær sitt óvænna og tilkynnti að hann myndi ekki taka þingsæti færi svo að hann hlyti kjör.
Orðalagið í yfirlýsingu Þórðar Snæs var loðið. Tilfallandi skrifaði tveim vikum fyrir kjördag:
Þórður Snær hefur ekki gefið það út að hann ætli að segja af sér þingmennsku, nái hann kjöri, aðeins að hann taki ekki þingsæti. Verulegur munur er þar á. Þórður Snær fær sjálfkrafa kjörbréf sem þingmaður, hljóti hann kosningu.
Ritstjórinn vildi fá eitthvað í staðinn fyrir að segja sig frá þingmennsku. Í gær tilkynnti Þórður Snær sjálfur, en ekki þingflokkur Samfylkingar, að hann hefði landað ráðningu sem framkvæmdastjóri þingflokksins. Í gær segir Þórður Snær í fyrsta sinn að hann ætli að segja af sér þingmennsku. Á móti fær hann framkvæmdastjóralaun sem greidd eru af ríkissjóði.
Þingflokkar hafa heimild til að ráða starfsmenn. Í reglum alþingis segir um hlutverk starfsmanna þingflokka að þeir skuli
annast faglegan undirbúning þingmála, upplýsingaöflun og skýrslugerðir, samskipti við almenning, samtök og stofnanir, ásamt skipulagningu á fundum og öðrum viðburðum á vegum þingflokksins.
Yfirleitt kallast þeir ritarar, eða einfaldlega starfsmenn, sem vinna þessi verk, ekki framkvæmdastjórar.
Í næstu viku gætu breyst forsendurnar fyrir ráðningunni. Þórður Snær veit það manna best sjálfur. Það er ástæðan fyrir því að hann tilkynnti um ráðningu sína en ekki þingflokksformaðurinn fyrir hönd þingflokksins, eins og eðlilegt hefði verið.
Þórður Snær er sakborningur í byrlunar- og símamálinu. Líkt og tilfallandi sagði frá í gær eru mest fimm virkir dagar þangað til ríkissaksóknari tekur afstöðu til þess hvort lögreglan haldi áfram með málið og ákæri eða að málið skuli fellt niður.
Ákveði ríkissaksóknari að lögreglan haldi áfram málinu eru líkur á að framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar endi á ákærubekk. Með tilkynningunni í gær, um að hann væri orðinn framkvæmdastjóri, gefur Þórður Snær til kynna að hann veðji ekki á hagfellda niðurstöðu ríkissaksóknara og vilji láta þingflokk Samfylkingar standa frammi fyrir orðnum hlut, að ráða sem talsmann sakborning í alvarlegu refsimáli.
Ef Þórður Snær væri enn blaðamaður og ritstjóri og um væri að ræða framkvæmdastjóra hjá öðrum þingflokki en Samfylkingunni má bóka að hann hefði farið hamförum gegn siðleysinu.
Þórður ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)