Laugardagur, 7. september 2024
Gummi ráðherra kveikir: of margir útlendingar
Of margir útlendingar hafa flust til Íslands á of skömmum tíma. Innviðir, s.s. skólakerfi, ræður ekki við fjöldann. Útkoman verður gettóvæðing þar sem stór hópur útlendinga lærir ekki íslensku.
Afleiðingin verður félagsleg mismunun. Þeir sem ekki læra tungumálið finna sig ekki heima í íslenskum siðum og menningu. Utanveltu og illa gáttaðir útlendingar eru síður til friðs.
Allt er þetta samkvæmt uppskrift Vinstri grænna, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar. Jaðarmenning er fóstruð af þessum flokkum, sem leynt og ljóst leggja fæð á íslenskt samfélag.
Guðmundur Ingi félagsráðherra kveikir á perunni vonum seinna.
![]() |
Ráðherra segir stöðu Íslands áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)