Moggi ergo sum

DV sendir skeytin á Hádegismóa. DV er í eigu sömu ađila og gáfu út Fréttablađiđ sáluga og halda einnig úti stjórnmálaflokki, Viđreisn. DV-flokkurinn berst núna gegn íslensku krónunni en ţegir um ESB-ađild - í ţeirri von ađ almenningur láti blekkjast.

Davíđ Oddsson ritstjóri Morgunblađsins er skotmark DV-manna. Fundiđ er ađ ţeirri venju Davíđs ađ tala viđ fólk. DV heldur yfirlit yfir aldur ritstjórans og vill gjarnan ađ hann fari á eftirlaun. Líklega er ţađ af góđsemi. Eftirlaunaţegar eiga hćgara um vik ađ rćđa viđ mann og annan en launaţrćlar.

Í annarri frétt gerir DV ţví skóna ađ pólitísk áhrif Mogga fari ţverrandi, vćntanlega ţar sem ritstjórarnir eyđi meiri tíma í samskipti viđ fólk en hollt teljist. Meint pilla er lítt dulin lofrulla um áhrifavald Morgunblađsins. Kallađur er til vitnis um léttvigt Morgunblađsins foringi Sósíalistaflokksins, Gunnar Smári Egilsson. Samkvćmt Gunnari Smára fréttir hann núorđiđ seint og um síđir af sínum málum í blađi allra landsmanna. Af sem áđur var er tíđindin bárust Smáranum snemmendis.

Gunnar Smári segist hafa hitt mann í kjörbúđ. Og um hvađ rćddu ţeir ţá örskotsstund sem menn hjala viđ búđarrekka? Jú, hversu hratt ţeim bćrist til eyrna ađ hafa veriđ nefndir í Staksteinum. Menn hittast á förnum vegi og metast hvort nöfn ţeirra komist í Davíđsannála. Tilvísun tryggir tilvist. Í anda Descartes; Moggi ergo sum.

Á Hádegismóum hljóta menn ađ una glađir viđ ađ DV leggi sig í líma ađ útmála sterka stöđu Morgunblađsins. 


Bloggfćrslur 16. ágúst 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband