Úkraína opnar víglínu viđ Kúrsk

Óvćnt árás Úkraínuhers inn í Rússland fyrir fjórum dögum var árangursrík, bćđi í pólitísku og hernađarlegu tilliti. Hröđ framsókn sýnir ađ árásin kom Rússum í opna skjöldu, hvorki var til ađ dreifa á svćđinu varnarlínu, s.s. jarđsprengjusvćđum, né herliđi.

Síđustu mánuđi hefur Úkraína veriđ vörn á allri víglínunni, sem er um ţúsund km löng. Innrás inn í Rússland sýnir ađ Úkraínuher er hvergi af baki dottinn og geti sótt fram ef svo ber viđ.

Enn er ekki ljóst hve mikill her fór inn í Rússland og hvort landvinningar haldi áfram. Ţá eru markmiđin ekki ljós. Nefnt er ađ kjarnorkuver nćrri Kúrsk-borg sé á ađgerđaáćtlun Úkraínuhers. Rússar yrđu ragir ađ berjast um kjarnorkuver í nágrenni byggđar og myndu tćplega jafna ţađ viđ jörđu. Kjarnorkukatastrófa yrđi verulegt högg fyrir Kremlarherra.

Innrásin er áfall fyrir Rússa, hernađarlega, pólitískt og sálfrćđilega. Hingađ til hefur eingöngu veriđ barist á úkraínsku landi. Innrás í móđurlandiđ gćti haft afleiđingar fyrir stöđu Pútín forseta. 

Síđustu fregnir í morgun herma ađ dregiđ hafi úr framrásinni í Kúrsk. Í morgun segir myndbandabloggari hlynntur Úkraínu ađ Rússar hafi flutt nćgt herliđ á vettvang til ađ stemma stigu viđ framrás Úkraínuhers. Ţađ viti ekki á gott međ framhaldiđ. Annar bloggari, sem reynir ađ vera hlutlaus, dregur upp sömu mynd.

Síđustu vikur er rćtt um mögulega friđarsamninga. Ein tilgáta er ađ Úkraína ćtli sér ađ leggja undir sig rússneskt land til ađ nota í skiptum fyrir úkraínsk landssvćđi í friđarsamningum.

Opin spurning er hvort Úkraínumenn nái ađ bíta sig fasta á rússnesku landi. Ef ekki fer fyrir lítiđ ávinningur síđustu fjögurra daga í Kúrsk. 

 

 


Bloggfćrslur 10. ágúst 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband