Hælisglæpir og siðblinda í boði RÚV, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar

Siðblindur hælisleitandi Mohamad Kourani lék lausum hala á hér á landi, stundaði líkamsárásir og ofbeldisbrot með velvild og samþykki þingmanna Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar. Í fjölmiðlum nýtur glæpamaðurinn verndar RÚV.

Hvernig má rökstyðja ofangreinda ályktun? Jú, bæði mbl.is og visir.is segja frá dómsmálinu þar sem siðblindi glæpamaðurinn svarar til saka. RÚV segir enga frétt af ofbeldisfulla hælismanninum. Ríkisfjölmiðillinn birtir ótal fréttir um veik börn í röðum hælisleitenda en þegir um glæpamennina. RÚV skipulega dregur upp þá mynd að hælisfólkið sé einkum hjálparvana börn. Veruleikinn er annar.

Siðblindur Múhameð Kourani kemur hingað til lands árið 2018 frá Sýr­landi og fær alþjóðlega vernd. Vegna gallaðra útlendingalaga var ekki hægt að senda ofbeldismanninn úr landi þegar fulljóst var að maðurinn er óþokki. Þegar vonum seinna tókst betrumbæta lögin greiddu þingmenn Pírata atkvæði gegn lögunum en þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar sátu hjá.

RÚV og þingmenn Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata vilja íslensku samfélagi illt. Óþokkaöflin linna ekki látunum fyrr en Ísland verður þriðja heims ríki.


mbl.is „Ég mun drepa þig og fjölskyldu þína“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. júlí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband