Þriðjudagur, 4. júní 2024
Innfluttir glæpir og ónýt pólitík banabiti Vinstri græna
Um 75 prósent af öllum þeim sem sátu í gæsluvarðhaldi á Íslandi á síðasta ári eru útlendingar, segir í frétt Mbl.is Gæsluvarðhaldi er aðeins beitt í alvarlegum brotum. Hverjir eru það sem standa fyrir opingáttarstefnu í útlendingamálum í ríkisstjórninni? Jú, Vinstri grænir.
Hver eru önnur frægðarmál Vinstri grænna? Jú, bábiljufræði um manngerða hlýnun jarðar og transmenningu sem kennir að hægt sé að fæðast í röngum líkama en það er óvart líffræðilegur ómöguleiki.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur líða önn fyrir að púkka upp á Vinstri græna í ríkisstjórn. Neitunarvald jaðarflokks hefur stórskaðað borgaralegu flokkana, sem sést á jafnri og stöðugri fylgisaukningu Miðflokksins.
Starfsmaður þingflokks Vinstri grænna, Sunna Valgerðardóttir, áður aktívisti á RÚV, skrifar færslu þar sem hún kennir Sjálfstæðisflokknum um ófarir Vinstri grænna. Eins og aktívista er háttur snýr Sunna öllu á hvolf.
Vinstri grænir berjast fyrir töpuðum málstað, ekki í einum bardaga heldur á allri pólitísku víglínunni. Vegferð hins meginflokks vinstrimanna hér á landi sýnir glöggt einangrun Vinstri grænna. Samfylkingin klæðir sig upp í að verða borgaralegur flokkur, ætlar að skilja Vinstri græna eftir með Pírötum, sem mynda öxul óreiðuvinstrisins.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar sparkaði í Vg-líkið þegar hún í gær kvartaði hástöfum á alþingi um skort á lögregluliði til að hemja innfluttan afbrotafaraldur Vinstri grænna.
Vinstri grænir ljúka kjörtímabilinu hvorki með fylgi né forseta. Sjálfskaparvítin eru verst.
![]() |
Starfsmaður VG: Samstarfið að þurrka út flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)