Barn getur ekki verið trans

Rithöfundurinn JK Rawling fagnar sigri Kemi Badenoch í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Rawling, höfundur Harry Potter-bókanna, er kjósandi Verkamannaflokksins, en þekkt fyrir baráttu sína gegn yfirgangi karla í kvenlíki í kvennarýmum s.s. búningsklefum, salernum og kvennadeildum sjúkrahúsa. Samkvæmt trans ræður hugarfarið kyni, ekki líkaminn. Sumir karlar nýta sér það, t.d. til að keppa í kvennaíþróttum. 

Mér finnst Badenoch bæði greind og hugrökk og fagna kjöri hennar, segir Rawling. 

Barn getur ekki verið trans, sagði Badenoch í kappræðum vegna leiðtogakjörs Íhaldsflokksins, samkvæmt Telegraph. Hún var áður jafnréttisráðherra og vann að endurskoðun löggjafar til að tryggja rétt kvenna til kynaðgreindra rýma. Í ráðherrastarfi sagðist Badenoch hafa séð sterkar sannanir fyrir því að ungmennum sem eru samkynhneigð eða glíma við geðraskanir sé talin trú um að þau séu trans.

Hér á Íslandi eru Samtökin 78 með starfsemi í leik- og grunnskólum. Þar er börnum kennt að mögulega séu þau af röngu kyni. Nærri má geta að þau börn sem glíma við félags- og/eða þroskavanda séu líklegri en önnur til að leggja trúnað á fullorðna sem fara með sérstöku hugarfari í hlutverkaleiki með börnum. Þeir sem andmæla æskulýðsstarfi Samtakanna 78 eiga yfir höfði sér ákæru frá lögreglu.

Barn getur ekki verið trans, eins og nýkjörinn formaður breska Íhaldsflokksins segir. Lifandi nýburi fæðist með líkama og meðvitund. Líkaminn er annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Barn getur ekki verið í röngum líkama, ekki frekar en það gæti haft ranga meðvitund. Það er ómöguleiki. Sértrúarsamtök sem halda öðru fram eiga sinn rétt í heimi fullorðinna, sem hafa leyfi, í nafni félagafrelsis, að halda á lofti hvaða firru sem vera skal. En það á ekki að hleypa þeim nálægt leik- og grunnskólum.

Kosningabarátta stendur yfir hér á landi. Er einhver stjórnmálamaður nógu hugaður til að segja upphátt þessi sjálfsögðu sannindi: barn getur ekki verið trans.

 


mbl.is Badenoch nýr leiðtogi Íhaldsflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. nóvember 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband