Ţóra og Ađalsteinn međ lögmann í viđtal á Vísi

Tveir sakborninganna í byrlunar- og símamálinu, Ţóra Arnórsdóttir og Ađalsteinn Kjartansson, mćttu međ lögmann Blađamannafélags Íslands sér til halds og trausts í pallborđumrćđu á Vísi í gćr. Fréttamađurinn, Hallgerđur Kolbrún, afsakađi ađ brotaţolinn í málinu, Páll skipstjóri Steingrímsson, vćri ekki á stađnum en sagđi ađ honum yrđi síđar bođiđ viđtal.

Sakborningarnir tveir vildu ekki rćđa hvernig ţađ atvikađist ađ á međan skipstjórinn lá milli heims og helju á Landsspítala 4. til 6. maí 2021 ratađi sími hans inn á RÚV á Efstaleiti. Ţáverandi eiginkona skipstjórans hefur játađ ađ byrla honum, stela símanum og afhenda Ţóru símann. Síminn var afritađur á Efstaleiti og honum skilađ til eiginkonunnar daginn eftir. Engar fréttir birtust í RÚV međ vísun í efni ganga frá Páli skipstjóra. En ţann 21. maí, tćpum ţrem vikum eftir byrlun, stuld og afritun, birtust samrćmdar fréttir samtímis í Stundinni og Kjarnanum, sem síđar sameinuđust og heita Heimildin.

Ađalsteinn var undirmađur Ţóru á Kveik ţangađ til ţrem dögum fyrir byrlun. Páli var byrlađ kvöldiđ 3. maí á Akureyri og fluttur daginn eftir á gjörgćslu gamla Borgarspítala í Fossvoginum, gengt RÚV. Í hádeginu 30. apríl skipti Ađalsteinn um vinnustađ, fór af RÚV á Stundina, sem systir hans Ingibjörg ritstýrđi. Hann er skráđur höfundur fréttarinnar um skćruliđadeild Samherja, sem birtist í Stundinni morguninn 21. maí. Sama morgun birti Kjarninn sömu frétt og var hún merkt Ţórđi Snć ritstjóra, nú ţingmannsefni Samfylkingar, og Arnari Ţór Ingólfssyni. Hvers vegna ađ nota tvo fjölmiđla til ađ birta frétt sem RÚV var međ?

Í pallborđinu á Vísi í gćr rćddu Ađalsteinn og Ţóra ekkert um ţađ sérkennilega vinnulag ţriggja fjölmiđla ađ fá í hús gögn á einum fjölmiđli en senda efni til birtingar á tvo ađra. Engir fjölmiđlar á vesturlöndum vinna fréttir međ ţessum hćtti. Ófrávíkjanleg regla er ađ fjölmiđill, er fćr efni taliđ hćft til birtingar, segi fréttina sjálfur en flytji hana ekki til annarra fjölmiđla. Burtséđ frá byrlun, ţjófnađi og afritun er leynimakk RSK-miđla stađfesting á siđlausu vinnulagi.

Ađalsteinn neitađi í gćr ađ hafa fengiđ upplýsingar úr sima skipstjórans. En hann getur ekki sagt hvar hann fékk upplýsingarnar, ber viđ vernd heimildarmanna. Einkagögn Páls skipstjóra, s.s. samtöl viđ samstarfsmenn,  eru hvergi til nema hjá honum sjálfum. Ţáverandi eiginkona skipstjórans kunni leyninúmeriđ til ađ opna símann. Ţađ ţurfti ađeins ađ afrita. Ţegar konan mćtti á Efstaleiti var búiđ ađ kaupa Samsung-síma, samskonar og skipstjórans. Afritunarsíminn hafđi númeriđ 680 2140. Símanúmer Páls var 680 214X. Blađamennirnir vissu međ fyrirvara ađ sími skipstjórans vćri vćntanlegur.

Ađalsteinn fékk upplýsingarnar, og sjálfsagt fréttina meira og minna tilbúna, frá Efstaleiti til ađ birta í Stundinni undir eigin nafni - og fá verđlaun fyrir. Gögnin komu úr síma skipstjórans, um ţađ er engum blöđum ađ fletta. Til stađfestingar eru tvö símtöl. Ađalsteinn hringdi í Pál skipstjóra daginn fyrir birtingu fréttarinnar á Stundinni. Ţórđur Snćr á Kjarnanum gerđi slíkt hiđ sama. Ellefu mínútur eru á milli símtalanna. Ef ekki var um einkagögn skipstjórans ađ rćđa hvers vegna hringdu blađamennirnir báđir í hann? 

Flólki Ásgeirsson lögmađur Blađamannafélags Íslands var á pallborđinu međ sakborningunum í gćr. Flóki hefur einnig mćtt međ Ađalsteini í skýrslutöku hjá lögreglu. Međ ţví ađ hafa lögmann međ sér í pallborđiđ auglýstu sakborningarnir ađ ţeir treystu sér ekki til ađ rćđa byrlunar- og símamáliđ á forsendum blađamennsku. Starfandi blađamenn tóku málstađ sakborninganna fyrst eftir ađ byrlunar- og símamáliđ komst á dagskrá. Síđan hefur jafnt og ţétt kvarnast undan stuđningi viđ sakborninga. Starfandi blađamenn vita hvernig kaupin gerast á eyrinni. Vinnubrögđ sakborninga eru einsdćmi og algerlega á skjön viđ siđareglur, ađ ekki sé talađ um landslög.

Byrlunar- og símamáliđ var fellt niđur af hálfu lögreglu međ sakfellandi yfirlýsingu. Skipstjórinn kćrir niđurfellinguna til ríkissaksóknara. Burtséđ frá niđurstöđu ríkissaksóknara er skipstjórinn međ sterkar forsendur til ađ höfđa einkamál á hendur blađamönnum. Leyniađgerđ RSK-miđla stađfestir ađ blađamenn höfđu ásetning ađ brjóta á friđhelgi skipstjórans. Málsvörnin, ađ gögnin hefđu átt erindi til almennings, stenst ekki ţar sem RÚV vann fréttaefniđ en birti ekkert, heldur sendi ţýfiđ á Stundina og Kjarnann til birtingar.

 

 

 

 

 

 


Bloggfćrslur 17. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband