Föstudagur, 29. september 2023
Lilja: RÚV er ekki alvöru fjölmiðill
RÚV býr til staðreyndir úr skoðunum. Jóhannes Stefánsson uppljóstrari hafði þá skoðun að Samherji hefði mútað namibískum stjórnmálamönnum. Skoðun Jóhannesar stóðst ekki prófstein veruleikans, samanber sakamálarannsóknir á Íslandi og Namibíu, en RÚV birti skoðun Jóhannesar sem staðreynd. Enginn fjölmiðill með snefil af sjálfsvirðingu gerir skoðun áfengis- og eiturlyfjafíkils að staðreynd.
RÚV skáldaði, og kallaði staðreynd, að Íslendingar hefðu verið ákærðir í Namibíu. Enginn var Íslandsmaðurinn ákærður þar syðra. RÚV flutti sína skoðun sem staðreynd en hún reyndist staðleysa, lygi.
Lilja Alfreðsdóttir fjölmiðlaráðherra ávarpaði útvarpsþing RÚV í gær á Glæpaleiti - afsakið - Efstaleiti. Undir rós sagði Lilja að RÚV væri ekki alvöru fjölmiðill. Lilja sagði mikilvægt að styrkja
ritstýrða alvöru fjölmiðla, til þess að gera meiri greinarmun á því sem er byggt á þekkingu, staðreyndum og hins vegar skoðunum.
RÚV uppfyllir ekki skilyrði ráðherra um alvöru fjölmiðil. Fyrir utan að gera staðreyndir úr skoðunum eiga fréttamenn RÚV aðild að glæpum, s.s. byrlun og gagnastuldi, auk misþyrminga á andlega vanheilum einstaklingum og alvarlegu broti á friðhelgi almennra borgara. Ríkisskoðunarveitan hefur aukinheldur á sínum snærum skattsvikara sem svíkjast um að borga til samneyslunnar, sem RÚV lifir þó á.
Lilja boðar aukið valfrelsi almennings til að velja sér fjölmiðil í áskrift. Í dag er skylduáskrift að RÚV. Framsókn myndi sópa til sín atkvæðum með því að afnema skylduáskriftina. Þar með mættu skuggastjórnendur ríkisfjölmiðilsins, starfsmennirnir og vinstrisinnaðir velunnarar, standa undir rekstrinum. Útvarp Saga fengi verðugan keppinaut.
![]() |
Boðar skattaafslátt fyrir áskrifendur að fjölmiðlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)