Miðvikudagur, 13. september 2023
Samtökin 78: Regnhlíf fyrir tælingu barna
Í grunnskólum Reykjavíkur er BDSM-kynlífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennsluefni í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur og sjá um þjálfun og kennslu.
Samtökin 78 eru regnhlífarsamtök og lífsskoðunarfélag fullorðinna sem áhugasamir eru um klám, kynlíf, kynjaveröld og tælingu barna. Þegar samtökin eru afhjúpuð er það kallað upplýsingaóreiða. En það er ekki óreiða að sjá hlutina í réttu samhengi.
Á RÚV segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, ,,að námsefninu ætlað að sporna gegn áhrifum kláms." Það er léleg afsökun fyrir að klæmast í kennsluefni.
Námsefnið kennir börnum að fróa sér í baðkari og segir um nektarmyndartöku barna: ,,Þú átt þinn líkama og mátt taka myndir af honum, en þarft þess alls ekki."
Menntamálastofnun gefur út rit í anda boðskapar Samtakanna 78. Forstjórinn segir í Kastljósi að ekki sé fjallað um sjálfsfróun í ritinu. Fréttin afhjúpar ósannindin. Í ritinu grasserar efni sem á ekki heima í leik- og grunnskólum.
Kennsluefnið er tæling dulbúin sem upplýsingar. Meðfædd blygðunarsemi barna er skipulega brotin niður. Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi og það jafnvel ofbeldiskynlífi - BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfsmynd og talin trú um að þau séu mögulega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óörugg eru síður í stakk búin að veita viðnám fullorðnum með eitthvað misjafnt í huga. Út á það gengur tælingin.
Samtökin 78 er lífskoðunarfélag fullorðinna með jaðarhugmyndir um kyn og kynlíf. Líkt og aðrir sértrúarhópar á félagsskapurinn sinn tilverurétt - í heimi fullorðinna.
Á RÚV er haft eftir Helga sviðsstjóra að kennsluefnið sé unnið af sérfræðingum Samtakanna 78.
Vottar Jehóva eru sérfræðingar í trúmálum. Ekki er þeim boðinn aðgangur að leik- og grunnskólabörnum. Ekki er kennsluefni frá vottunum notað í skólum. Almennt hafa lífsskoðunarfélög ekki aðgang að leik- og grunnskólum. Sérviskusjónarmið um lífið og tilveruna hafa sinn vettvang í félagasamtökum fullorðinna.
Ágengni samtaka gagnvart börnum sýnir að undir fagurgala um fjölbreytileika er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, vammlausri og óreyndri æsku sem býr ekki að stálpaðri dómgreind. Fullorðinn sem talar fávisku ofan í börnin, t.d. að hægt sé að fæðast í röngu kyni, nýtir sér barnslegt sakleysi óharðnaðra ungmenna.
Foreldar vakna upp við þann vonda draum að kyn- og kynlífspælingar sem þeim dytti aldrei í hug að halda að börnum sínum er skipulega flaggað framan í börnin þegar foreldar eru fjarri.
Hvers vegna er lífsskoðunarfélaginu Samtökunum 78 hleypt inn í leik- og grunnskóla? Ástæðan er pólitísk. Vinstriflokkarnir, þ.e. Vinstri grænir, Samfylking, Píratar og Viðreisn eru allir hlynntir kreddum og hugmyndafræði Samtakanna 78. Vinstrimenn eru stærsti hópurinn í fræðslu- og skólastarfi. Ekki dettur þeim í hug að amast við verulega óæskilegri þróun þar sem börn eru leiksoppar í furðuveröld jaðarhóps fullorðinna.
Umræðan síðustu vikna og daga sýnir að lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 á ekkert erindi með sérviskuskoðanir um kyn og kynlíf inn í leik- og grunnskóla. Það voru mistök að hleypa Samtökunum 78 í skólastarf. Þau mistök ber að leiðrétta.
![]() |
Fimmtán manns að rífa mig í sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |