Blóðþyrstir Píratar

Píratar leggja blessun sína yfir fjöldamorð á spendýrum, fiskum og fiðurfé með frumvarpi sem þeir hyggjast leggja fram á alþingi Íslendinga. Frumvarpið leyfir slátrun og veiðar á öllum dýrategundum nema einni - hvölum.

Hvers á kálfurinn að gjalda, þessi með fallegu augun en verður brátt að hakki? Eða saklausa fjallalambið á leið í steik? Hvers vegna er kjúklingaeldi ekki bannað? Hvað með frjálsa fugla himins, gæs og rjúpu, sem árvisst verða fyrir skotárásum byssuglaðra? Hugsið um fiskana í sjónum sem nauðugir viljugir eru dregnir upp úr náttúrulegum heimkynnum sínum með botnvörpu og krókaveiðiskap síðan blóðgaðir, kúttaðir og flattir. 

Hvað gengur Pírötum til með að gera upp á milli málleysingjanna? Hvað með jafnrétti dýranna? Rasismi gagnvart lífverum í lofti, á láði og legi ber ekki mannúð vitni heldur mismunun af grófustu sort. Er eitthvað hinsegin við hvali sem kallar fram samúð Pírata? Eða eru sjóræningjarnir aðeins í þykjustunni dýravinir? Er markmiðið það eitt að draga á tálar kjósendur sem næst standa málleysingjum að vitsmunum?

Píratar skulda þjóðinni skýringar.


mbl.is Píratar kalla eftir banni við hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. september 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband