Þjóðverjar herða frávísun hælisleitenda

Þýsk stjórnvöld hyggjast herða reglur um frávísun hælisleitenda sem ekki hafa fengið dvalarleyfi í Þýskalandi. Lögreglu verður heimilt að halda þeim sem vísa á úr land i varðhaldi í allt að 28 daga, en var áður tíu dagar.

Hert löggjöf í Þýskalandi er til að létta á álagi við móttöku hælisleitenda og vinsa úr þá sem leita hælis á fölskum forsendum, segir Die Welt. Refsingar eru gerðar hælisleitendum sem veita engar upplýsingar um sig, líka þeim er gera ranga grein fyrir sjálfum sér eða veita ófullnægjandi upplýsingar.

Umboðsmaður hælisleitenda á alþingi, Arndís Anna, er jöfnum höndum selur flóttamönnum lögfræðiþjónustu og veitir þeim ríkisborgararétt sem þingmaður, segir í fréttum RÚV að Ísland ætti að taka Þýskaland sér til fyrirmyndar í málefnum hælisleitenda. 

Þá liggur það fyrir. 


Bloggfærslur 3. ágúst 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband