Fimmtudagur, 24. ágúst 2023
Prigósjín, valdarániđ og Pútín
Ef flugvél Prigósjín forsprakka Wagner málaliđa var skotin niđur rétt utan Moskvu eru allar líkur ađ valdaránstilraunin 24. júní hafi ekki veriđ sviđsett heldur föđurlandssvik. Drápiđ sé málagjöldin.
Gagnrýni Prigósjín á yfirstjórn hersins gekk út á ađ rússneski herinn stígi alltof varlega til jarđar í Úkraínu. Ef frá eru taldar fyrstu vikur innrásarinnar, ţegar beitt var leifturstríđi, mallar rússneska hernađarvélin hćgt en stöđugt. Vestrinu og Úkraínu skal ţrjóta fyrr örendiđ en Rússum er herfrćđin. Engin meginbreyting er á herfrćđi Kremlarbćnda eftir ađ stöđustríđiđ tók viđ af leiftursókninni í fyrravor.
Prigósjín er áhćttusćkinn og krafđist aukinnar hörku. Ţar sem foringi Wagner-hópsins er ekki hermađur heldur herskár auđmađur er engin leiđ ađ sjónarmiđ hans fengju hljómgrunn nema međ stuđningi valdamikilla einstaklinga í yfirstjórn hersins, - sem hefđu ţá veriđ bandamenn hans í valdaránstilrauninni.
Fćru Rússar halloka á vígvellinum gćtu áhrifamenn í herstjórninni gripiđ til örţrifaráđa. Stöđustríđiđ ţróast Rússum í vil. Lítil efni eru til örvćntingar í ţeirra herbúđum. Ţađ eru ekki unglingar á gelgjuskeiđi sem stýra hernum.
Surovíkin heitir hershöfđinginn sem fór fyrir hernađarađgerđum Rússa. Ţangađ til í síđustu viku ađ ţađ spurđist út ađ Surovíkin vćri fluttur til í starfi. Var hann bandamađur Prigósjín? Sé ţađ tilfelliđ mun hann ekki kemba hćrurnar. Landráđ á stríđstíma er meira en brottrekstrarsök.
Eftir valdaránstilraunina fluttu Wagner-liđar til Hvíta-Rússlands, sem nánast er hjálenda Rússlands. Í herbúđum ţeirra stendur yfir undirbúningur ađ endurnýjađri ađild ađ stríđsátökum. Sjálfur valhoppađi Prigósjín milli landa, var oft í Rússlandi en fór líka til Afríku. Auđvelt skotmark í tvo mánuđi eftir meinta tilraun til valdaráns. Hafi völd Pútín stađiđ tćpt 24. júní er 60 daga friđhelgi landráđamanns auglýsing um veikleika valdstjórnarinnar. Valdhafar opinbera ekki veikleika sína, síst á stríđstíma.
Engu ađ síđur. Međ Prigósjín í flugvélinni voru sex af ćđstu yfirmönnum Wagner-liđa. Hafi vélin veriđ skotin niđur ađ undirlagi Pútín var í einum rykk gert út um helstu fyrirliđa málaliđasveitarinnar. Trauđla gert nema Wagner-liđar ógnuđu öryggishagsmunum ríkisins. Vel ađ merkja, ekki er enn stađfest ađ Prigósjín sé međal hinna látnu, ađeins ađ hann hafi veriđ á farţegaskrá.
En var flugvélin skotin niđur? Rćma af hrapi vélarinnar sýnir ađ hún kemur niđur í heilu lagi. Flugskeyti sem hittir flugvél ofar jörđu sprengir hana í lofti.
Tilfallandi telur enn ađ valdaránstilraunin 24. júní hafi veriđ sviđsett. Er ţó ekki jafnviss í sinni sök og hann var 25. júní.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)