Sviđsett tilraun til valdaráns

Sviđsett tilraun til valdaráns í Rússlandi var annađ tveggja enn ein roka Jev­gení Prigó­sjín stjóra Wagner-málaliđa eđa dýpra plott sem ćđstu ráđamenn Kremlar, Pútín međtalinn, stóđu ađ baki.

Prigó­sjín er ekki tvöfaldur í rođinu heldur margfaldur. Nánast frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu hefur hann leikiđ andstćđing varnarmálaráđuneytisins samtímis sem Wagner-liđar skila hvađ bestum árangi á vígvellinum af öllum rússneskum hersveitum. 

Sjálfur er Prigó­sjín ekki hermađur, ţótt hann klćđi sig upp sem slíkur. Ađrir sjá um hermennskuna en sá kjaftfori. Ekki heldur fjármagnar hann úr eigin vasa málaliđana. Til ađ fá hermenn fór Prigó­sjín í fangelsi Rússlands og bauđ afbrotamönnum mála gegn sakaruppgjöf. Án náins samráđs viđ yfirvöld hefđi ţađ ekki veriđ hćgt.

Fyrir Úkraínustríđiđ gerđu Wagner-liđar sig gildandi í Afríku og Sýrlandi sem verkfćri Kremlarherra. Stórveldum er ţénugt ađ hafa á sínum snćrum málaliđa til ađgerđa sem illa ţola dagsljósiđ. Wagner er sem sagt hálfopinber hluti rússneska valdakerfisins.

Einn möguleiki er ađ valdaklíka ađ baki Prigó­sjín standi ađ baki sviđsetningunni. Tilraun til ađ rćna völdum er stendur yfir í hálfan annan sólarhring er hálfvelgja. Á stríđstíma er landráđ dauđasök. Menn leggja eigiđ líf undir. 36-klukkustunda kúrekaleikur er međ einhverja dagskrá ađra en ađ steypa af stóli ríkisstjórn Pútín.

Líklegast er ađ sviđsetningin hafi veriđ unnin í samráđi viđ Pútín og félaga. Tilgangurinn vćri ađ sýna rússnesku ţjóđinni fram á ađ stríđ sé dauđans alvara sem krefjist samstöđu og fórna. Til ţessa er stríđiđ fjarlćgur veruleiki ţorra rússnesks almennings.   

Frá 4. júní stendur yfir sókn Úkraínuhers í Saparosíja-hérađi í suđurhluta landsins. Markmiđiđ er ađ sćkja suđur á Krímskaga og kljúfa rússneska herinn í tvennt. Rússar hafa síđustu mánuđum byggt ţrjá víglínur til varnar. Eftir ţrjár vikur er Úkraínuher ekki komin yfir fyrstu og veikustu rússnesku víglínuna. Selenskí forseti viđurkennir í víkunni ađ sóknin gangi heldur hćgt.

Á ţessum ţrem vikum tćpum er mannfall Úkraínuhers líklega um 12 til 15 ţúsund og ógrynni hergagna fer forgörđum. Til samanburđar er mannfall Rússa frá upphafi stríđsátaka, fyrir hálfu öđru ári, um 25 ţúsund. Úkraínu er ađ blćđa út.

Ţegar sókn Úkraínu rennur sitt skeiđ í júlí ađ líkindum er tćkifćri fyrir Rússa ađ sćkja fram og ná afgerandi sigrum á vígvellinum. Ţađ mun kosta meiri mannfórnir en hingađ til.

Sviđsetta valdaránstilraunin er líklegast undirbúningur Kremlarbćnda á stökkbreyttu stríđi.


mbl.is Enn mikill viđbúnađur í Moskvu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 25. júní 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband