Árásargirni RÚV

Auglýsingadeild RÚV er árásargjörn, segir í viðtengdri frétt. Sama gildir um fréttadeild. Svo dæmi sé tekið er tveggja ára gömul frétt á RÚV með eftirfarandi fyrirsögn:

Íslendingar ákærðir vegna Samherjamálsins í Namibíu

Þrír einstaklingar eru nafngreindir og myndir birtar af þeim. En enginn Íslendingur var eða hefur verið ákærður í Namibíu. 

Árásargirni í sinni tærustu mynd. Forherðingu er söðlað á glæpinn með því að sannanlega röng frétt stendur keik og óleiðrétt á heimasíðu ríkisfjölmiðilsins í tvö ár og fjórum mánuðum betur.

Á RÚV heitir það að ef frétt er á skjön við veruleikann er það verst fyrir veruleikann.

Árásargirni RÚV og forherðing sækir afl sitt í auglýsingafé annars vegar og hins vegar nefskatt, 20 þús. krónur, sem allir skattskyldir landsmenn eru neyddir til að borga í hítina.

Opinbert vald sem misþyrmir saklausu fólki og skattleggur brotaþola í ofanálag á ekki að þrífast í siðuðu samfélagi.


mbl.is Telja æskilegt að leggja niður auglýsingadeild RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband