Maurizio og Ragnar Þór, krúnan og lýðveldið

Maurizio Tani mótmælti bresku krúnunni um helgina. Næstu helgi boðar Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR mótmæli gegn íslenska lýðveldinu.

Rísum upp er slagorðið. Mótmælin eru gegn vöxtum, bankakerfinu, ástandi helbrigðisþjónustu, erfiðum húsnæðismarkaði og versnandi afkomu. Síðan segir Ragnar Þór:

Eða hefur þú fengið nóg af einhverju öðru sem betur má fara í okkar samfélagi?

Lýðveldið, sem sagt, frá toppi til táar, er tilefni mótmæla Ragnars Þórs.

Maurizio Tani segist lýðveldissinni og vill afskaffa breska konungsdæmið. Ragnar Þór er sennilega ekki konungssinni þótt hann vilji allt feigt sem lýðveldinu tilheyrir.

Ragnar Þór tilheyrir hópi fólks sem skreið undan steini við hrunið og fær ekki nóg af skálmöldinni sem tröllreið húsum árin eftir. Stjórnmálasamtök, Píratar og Viðreisn, færðu í formlegan búning andófið en urðu í leiðinni hluti af stofnanaveldinu og þiggja ríkisstyrk.

Mótmælasinnar eins og Ragnar Þór hafa alltaf verið til. Hér í den var Birna Þórðardóttir í þessu hlutverki. Munurinn er sá að Birna var vanalega með á hreinu hverju skyldi mótmælt. Ísland úr Nató, herinn burt var eftirminnilegt slagorð.

Í dag heitir það mótmælum, bara einhverju. Allt er hvort eð er að fara til fjandans. Hvers vegna ekki að drífa sig að öskra á allt og alla?

 


mbl.is Mótmælti einn og ætlar ekki að gefast upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. maí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband