Þriðjudagur, 30. maí 2023
Tvöfeldni Þórðar Snæs á Vísi
Kristinn Haukur Guðnason blaðamaður á Vísi lærði til verka hjá Þórði Snæ ritstjóra Kjarnans, nú Heimildarinnar. Aðalsmerki Þórðar Snæs er tvöfeldni. Ein heimild er tvöfölduð. Í blaðamennsku er krafa um að minnsta kosti tvær heimildir fyrir frétt, sérstaklega ef fréttin felur í sér alvarlegar ásakanir.
Þórður Snær leysir málið með því að fá aðra heimild til að endurflytja ásakanir frumheimildir og kalla það tvær sjálfstæðar heimildir. Ófrumlegt og algjörlega siðlaust.
Þórður Snær er einn sakborninga í byrlunar- og símastuldsmálinu. Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað 3. maí 2021. Á meðan hann var meðvitundarlaus var síma hans stolið og hann afritaður. Allt var þetta í þágu RSk-miðla, RÚV, Stundarinnar og Kjarnans. Tveir síðartöldu miðlarnir heita nú Heimildin.
Allt sem kemur frá Heimildinni um Namibíumálið er merkt þeirri staðreynd að Þórður Snær, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson eru sakborningar. Þegar þeir skrifa um málefni Samherja eru þeir að skrifa um sjálfa sig. Helgi Seljan einnig, þótt ekki sé vitað til þess að hann sé sakborningur.
Þá kemur Kristinn Haukur Guðnason blaðamaður á Vísi til sögunnar. Hann var lærisveinn Þórðar Snæs og gerir fyrrum yfirmanni sínum greiða með fréttaflutningi sem óþægilegt er fyrir Heimild sakborninga að birta.
Fyrir mánuði skrifar Kristinn Haukur frétt um nýja bók um Namibíumálið, sem hann, trúr RSK-miðlum, kallaði Samherjamálið. Tilfallandi ræddi frétt lærisveinsins og sagði:
,,Á miðvikudag kom út bók í Namibíu um Samherjamálið," segir í frétt á Vísir.is. En bókin er ekki um Samherja heldur spillingu í Namibíu. Nokkur munur þar á.
Samherji er ekki nefndur á nafn í hálftíma kynningu höfundar bókarinnar, Roman Grynberg. Útgefandi bókarinnar er The Namibian. Ritstjórinn Tangeni Amupadhi talar í rúmar tíu mínútur og nefnir Samherja ekki á nafn.
Hvernig getur bók verið um ,,Samherjamálið" án þess að fyrirtækið sé nefnt á nafn í kynningu bókarinnar?
Aftur er Kristinn Haukur á ferðinni í síðustu viku með sömu umfjöllun undir annarri fyrirsögn: Fjallað um glataðar skatttekjur í nýrri bók um Samherjamálið. Bókin er enn ný og Samherji enn skúrkurinn.
Páll skipstjóri Steingrímsson gerir ásökunina í Vísi að umtalsefni á Facebook-færslu og segir:
Því er haldið fram í þessari bók og kemur fram í greininni á Vísi að Samherji hafi aðeins greitt 5 milljónir namibískra dollara í skatta þar í landi, sem er í kringum 40 milljónir íslenskra króna. Þetta er alrangt. Staðreyndin er sú að félög í eigu Samherjasamstæðunnar greiddu 100 sinnum meira í skatta (4 milljarða kr.) í Namibíu. Þegar allar greiðslur til namibískra aðila eru teknar saman, en mikill fjöldi namibískra sjómanna störfuðu hjá samstæðunni auk þess sem vörur og þjónusta voru keyptar af namibískum fyrirtækjum eins og kostur var, nema fjárhæðir sem runnu inn í namibískt hagkerfi yfir 21 milljarði króna. Ólíkt bókarhöfundi þá byggja framangreindar fjárhæðir á bókhaldi og ársreikningum félaganna.
Þórður Snær og RSK-sakborningarnir fá tvær fréttir til stuðnings málstaðnum, skrifaðar af lærisveini Þórðar Snæs.
Tvöfeldnin kemur fram í því að höfundur bókarinnar, Roman Grynberg, viðurkennir að eina heimild hans um hlut Samherja í Namibíu er Jóhannes Stefánsson uppljóstrari.
Hvers vegna leitaði Kristinn Haukur ekki beint til Jóhannesar? Hann er eina heimildin. Er það kannski vegna þess að Aftenpostin-Innsikt hefur játað að orð Jóhannesar hafa engan stuðning í gögnum? Um er að ræða ásakanir án rökstuðnings.
Hvað gera þeir sem stunda blaðamennskutvöfeldni en skortir heimildir? Jú, þeir fá einhvern annan til að endurróma innistæðulausu ásakanirnar. Hókus pókus og tvær heimildir eru komnar þar sem ein var áður.
Siðlausa blaðamennskan sem Þórður Snær og félagar stunda verður afhjúpuð þegar lögreglurannsókn á byrlun og gagnastuldi lýkur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)