Sunnudagur, 30. apríl 2023
Falsfrétt á Vísir.is: Samherjabók án Samherja
,,Á miðvikudag kom út bók í Namibíu um Samherjamálið," segir í frétt á Vísir.is. En bókin er ekki um Samherja heldur spillingu í Namibíu. Nokkur munur þar á.
Samherji er ekki nefndur á nafn í hálftíma kynningu höfundar bókarinnar, Roman Grynberg. Útgefandi bókarinnar er The Namibian. Ritstjórinn Tangeni Amupadhi talar í rúmar tíu mínútur og nefnir Samherja ekki á nafn.
Hvernig getur bók verið um ,,Samherjamálið" án þess að fyrirtækið sé nefnt á nafn í kynningu bókarinnar?
Jóhannes Stefánsson uppljóstrari er nefndur til sögu. Roman Grynberg segist hafa verið í sambandi við Jóhannes en aldrei hitt hann. Grynberg notar gögn frá Jóhannes til að sýna fram á að namibíska þjóðarbúið hafi orðið af 14 milljörðum namibískra dollara á tíu ára tímabili vegna sölu á hrossamakrílkvóta.
En hvernig fór kvótasalan fram? Jú, Namibíumenn einir fá úthlutaðan kvóta skv. lögum þar í landi. Grynberg sagði að t.d. hefðu 22 þingmenn, segi og skrifa tuttugu og tveir, fengið úthlutað kvóta. Þá eru ótaldar eiginkonur þeirra og ættmenni sem einnig fengu kvóta.
Þingmenn og aðrir kvótaeigendur seldu kvótann til útgerðafélaga.
Í Namibíu standa yfir réttarhöld vegna sölu á kvóta og meðferð þarlendra manna á þeim fjármunum. Tilfallandi blogg sagði frá málavöxtu:
Samningar um veiðiheimildir fólu sér ýmsar kvaðir kaupenda að leggja fram fjármagn til samfélagslegrar uppbyggingar í Namibíu. Erlendar útgerðir, m.a. Samherji, keyptu veiðiheimildir undir þessum formerkjum. Allt var þetta samkvæmt gildandi lögum í landinu. En peningarnir skiluðu sér ekki þangað sem þeir áttu að fara.
Níu Namibíumenn eru ákærðir fyrir umboðssvik, þjófnað og auðgunarbrot í tengslum við sölu á veiðiheimildum. Þá eru 11 lögaðilar ákærðir, skúffufyrirtæki sem níumenningarnir notuðu til að hylja brotin. Ákæruliðirnir eru samtals 28. Samherji er aðeins einn nokkurra aðila sem sakborningar blekktu til persónulegs ávinnings.
Í málarekstrinum í Namibíu er hvorki Samherji né starfsmenn útgerðarinnar á sakabekk.
Í frétt Vísis segir frá annarri bók sem blaðamenn RSK-miðla skrifuðu. Páll skipstjóri Steingrímsson hefur ítarlega farið yfir þá bók. Ekki stendur steinn yfir steini í málatilbúnaði RSK-miðla.
Saga Jóhannesar uppljóstrara var klædd í norskan búning og birt í tímaritinu Aftenposten-Innsikt. Tímaritið baðst auðmjúklega afsökunar að hafa birt fleipur.
Vísir.is birtir falsfrétt um Namibíumálið til að þóknast blaðamönnum RÚV og Heimildarinnar sem eru sakborningar í alvarlegum glæpum, byrlun og gagnastuldi. Vísir.is þegir um glæpi á Íslandi en gerir saklausa Íslendinga að afbrotamönnum í Namibíu. Blaðamaðurinn sem skrifaði falsfréttina á von á verðlaunum frá Blaðamannafélagi Íslands. Andverðleikar eru hátt skrifaðir þar á bæ.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)