Þrír nefndir og niðurlægðir, siðareglur RSK-miðla

Þremenningarnir sem Vítalía Lazareva kærði fyrir kynferðisbrot gerðust ekki brotlegir við lög. Rannsókn héraðssaksóknara er hætt. Vitalía naut stuðnings Eddu Falak og Heimildarinnar, áður Stundin/Kjarninn, að koma ásökunum sínum á framfæri opinberlega. RÚV er þar skammt undan, í RSK-bandalaginu. 

Í fjölmiðlum voru þremenningarnir dæmdir, mannorð þeirra fótum troðið og lífsviðurværi ógnað. Fara fjölmiðlar í naflaskoðun og ræða hvernig og hvenær ásökun er frétt? Ekki er það líklegt.

Blaðamannafélag Íslands endurskoðaði siðareglur blaðamanna nýverið. Félaginu er stýrt af fréttamanni RÚV, Sigríði Dögg. Varaformaður er Aðalsteinn Kjartansson á Heimildinni, áður Stundinni og RÚV. Aðalsteinn er formaður nefndarinnar sem endurskoðaði siðareglurnar, sem má kalla siðareglur RSK-miðla.

Gömlu siðareglurnar frá 1991 áminntu blaðamenn í 4.gr. að ,,virða þá meginreglu laga að hver maður er talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð." Ennfremur í 3 gr. að ,,forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu."

Í nýju siðareglunum, RSK-reglunum, er ekkert um sakleysi uns sekt er sönnuð. Ekki heldur neitt um að forða saklausu fólki frá óþarfa sársauka og vanvirðu.

RSK-siðareglur blaðamanna veita skotleyfi á saklausa. Þeir sem starfa í anda nýju siðareglnanna eru sannfærðir um að blaðamenn séu hafnir yfir almennt siðferði sem og landslög. Fimm blaðamenn RSK-miðla, Aðalsteinn þar á meðal, eru sakborningar í byrlunar- og símastuldsmálinu. 

RSK-miðlar eru böl íslenskrar blaðamennsku.


mbl.is Hættir rannsókn í máli Vítalíu gegn þremur mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. apríl 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband