Föstudagur, 31. mars 2023
Selenskí um Bakmút, frið og Pútín
Orustan um Bakmút í Austur-Úkraínu er sjö mánaða gömul. Úkraínumenn eru til varnar en Rússar sækja. Daglegur deyja um 200 til 400 hermenn í umsátrinu síðustu vikur. Selenskí forseti Úkraínu ræddi nýverið við fréttamenn AP-fréttastofunnar um stöðuna í Bakmút, friðarmöguleika og andskota sinn, Pútín forseta Rússlands.
Ef við töpum Bakmút, segir Úkraínuforseti, eykst þrýstingur innanlands á okkur að semja við Rússa. Fólk er tekið að þreytast á stríðinu.
Pútín mun gera mikið úr sigri í Bakmút á alþjóðavettvangi. Hann finnur blóðbragðið og færast í aukana, segir Selenskí.
Bandaríkin vita að hætti þau stuðningi við okkur munum við ekki sigra, er haft eftir forsetanum.
Það liggur í samhengi viðtalsins, þótt ekki sé vitnað beint í forsetann, að falli Bakmút verði versni staða Úkraínu á alþjóðvettvangi, aðstoðin gæti orðið torsóttari. Tap verði dýrkeyptara á pólitískum vettvangi en hernaðarlegum. Blóðfórnir í Bakmút eru Úkraínu dýrari en Rússum sem búa að meiri liðsafla. En á meðan borgin fellur ekki má alltaf halda í vonina.
Gagnárás Úkraínumanna við Bakmút hefur verið sögð yfirvofandi síðustu tvær vikur. Enn bólar ekki á henni. Beðið er eftir að jörð þorni til þungaflutninga, er sagt.
Viðtal Selenskí við AP sýnir ekki sigurvissan forseta.
Úkraína er í vörn, að ekki sé sögð nauðvörn, á vígvellinum og á alþjóðavísu. Jú, þeir eru margir vestrænu stjórnmálamennirnir sem sækja Selenskí heim í Kænugarð, t.a.m. íslenskir. Vestræna blokkin er kannski ekki jafn traust og hún er tungulipur en hefur þó skilað fjármagni og vopnum til að berjast við ofureflið.
Í viðtalinu viðurkennir Selenskí óbeint að úrslitavaldið liggi hvorki hjá vesturlöndum né Rússlandi heldur Kína. Við vorum í góðu sambandi við Kína fyrir stríð, segir Selenskí, og forseti Kína mætti gjarnan heimsækja mig. En frá upphafi átaka eru lítil samskipti.
Xi Jinping forseti Kína heimsótti aftur Pútín í Moskvu fyrr í mánuðinum. Vel fór á með þeim þótt tvennum sögum fari af hve mikinn stuðning Rússlandi fái frá grönnum sínum í austri. Kína er vinurinn álengdar.
Pútín á enga bandamenn, segir Selenski undir lok viðtalsins. Það verða smásigrar hér og smásigrar þar sem munu skipta sköpum um stríðsgæfuna.
Bakmút er smásigur sem gæti orðið stór. Fyrir Úkraínu ... eða Rússland.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)