Katrín, kúrekar og indíánar

Á 19. öld var háð sléttustríð á meginlandi Ameríku undir formerkjunum hugmyndafræðinnar ,,manifest destiny", skrifað í skýin. Seinni tíma frásagir, oft í kvikmyndaðar, bjuggu til andstæður úr sléttustríðinu, kúreka og indíána. Sögulegi skáldskapurinn fékk slíkar undirtektir að hann gekk í endurnýjun lífdaga í kalda stríðinu. Kúrekar urðu tákn siðmenningar en indíánar rauðir villimenn.

Ameríska sléttustríðið er sniðmát vestrænna frásagna af Úkraínustríðinu. Selenskí forseti er kúreki vestrænnar siðmenningar í austurvíking. Pútín rauði villimaðurinn er lætur ekki að stjórn, kaupir ekki hugmyndafræðina um vestræna forsjá.

Frásagnir af grimmd indíána á 19. öld eru yfirfærðar á Rússa. Almannatenglar fundu hverfi í útjaðri Kíev sem hentaði til sviðsetningar. Bútsja hljómar á ensku eins og slátrari. Líkum var sáldrað á götur hverfisins og Rússar sagðir fjöldamorðingjar. Grunnhyggnir gleypa uppfærsluna hráa enda hönnuð fyrir trúgjarna.  

Rétt eins og jafnan er hugmyndafræði yfirskin hagsmuna. Vestrið í Bandaríkjunum á 19. öld var tækifæri fyrir kapítalisma að brjóta undir sig land. Rússland, landmesta þjóðríki jarðkringlunnar, býr yfir náttúruauðlindum sem vestrænar fjármagnsklær geta ekki beðið að læsa sig í. Áður verða kúrekarnir að leggja undir sig lönd indíána. Heygðu mitt hjarta við Undað hné, kváðu frumbyggjar Ameríku er lífshættir þeirra liðu undir lok. Gráttu mig við Kremlarmúra, verða austrænu kveinstafirnir fá kúrekarnir sínu framgengt.

Katrín forsætis eggjar Selenskí í kúrekahlutverkinu. Pocahontas gengur enn fyrir björg.


mbl.is Stríðið er eins og ok á þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. mars 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband