Þriðjudagur, 3. október 2023
Fyrst hlýnar, síðan hækkar CO2
Nýjar rannsóknir staðfesta að koltvísýringur, CO2, orsakar ekki hitahækkun. Orsakasamhengið er öfugt: hitahækkun veldur hækkun koltvísýrings í andrúmslofti. Almenningur getur með góðri samvisku ekið fjölskyldubílnum þótt hann sé knúinn bensín eða dísil - og sleppt kaupum á rándýrum rafmagnsbílum sem illa þola bleytu og kulda. Góðar fréttir á ísa köldu landi.
Greint er frá vísindagreinum sem staðfesta ofanritað á heimasíðu loftslagsvísindamannsins Judith Curry, Climate etc, annars vegar og hins vegar Watts up with that.
Tvær tilvitnanir úr umfjölluninni:
Niðurstöðurnar eru skýrar: breytingarnar á CO2 geta ekki orsakað hitabreytingar. Þvert á móti, breytingar á hita eru líklegar ástæður breytinga á CO2 hvort heldur í nútíma eða fortíð.
og
Raunar er maðurinn aðeins ábyrgur fyrir 4% af heildarlosun koltvísýrings út í andrúmsloftið. Náttúruleg losun er ráðandi og eykst þrisvar sinnum hraðar en losun af mannavöldum, einmitt vegna hærri hitastigs.
Náttúran losar sem sagt 96 prósent af öllum koltvísýringi í andrúmsloftinu. Jörðin grænkar þar sem koltvísýringur er aðalfæða plantna. Á norðurhveli jarðar, þar sem mesti landmassinn er, taka plöntur koltvísýring úr andrúmsloftinu á sumrin. Á haustin og yfir veturinn losnar koltvísýringur út í andrúmsloftið þegar lauf falla og rotna. Er jörðin grænkar kemst meiri koltvísýringur í umferð. Úthöfin taka bæði við koltvísýringi og anda frá sér lofttegundinni.
Í framtíðinni verður ráðgáta hvernig Gore, Grétu og öðrum ólæsum á vísindi og náttúru tókst að að hræða líftóruna úr fólki með falsfræðum um að maðurinn ylli loftslagsbreytingum. Það er löngu þekkt staðreynd að mannlegar athafnir standa aðeins í ábyrgð fyrir 4%, segi og skrifa fjögur prósent, af koltvísýringi andrúmsloftsins. Náttúran sér um 96%.
Ef koltvísýringur takmarkar útgeislun hita jarðarinnar, samkvæmt gróðurhúsakenningunni, þá er það náttúran sjálf sem er að verki. En nú getum við urðað bábiljuna. Hitabreytingar koma á undan og orsaka hækkun koltvísýrings.
Vegna ágengra falsspámanna síðustu ára tekur tíma að vinda ofan af vitleysunni. En skriftin er á veggnum. Gengi falsspámanna er boða loftslagsbábiljur fellur hratt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)