Þriðjudagur, 24. október 2023
Valfrjáls áskrift að RÚV
Allir Íslendingar 18-70 ára eru skyldaðir í áskrift að RÚV. Útvarpsgjald er innheimt sem nefskattur á einstaklinga og lögaðila. RÚV er þó ekki annað en fjölmiðill og hann ekki ýkja merkilegur.
Löngu tímabært er að afnema skylduáskrift að ríkismiðlinum sem gengur sjálfala og án aðhalds. RÚV átti aðkomu að byrlunar- og símastuldsmáli vorið 2021. Lögreglurannsókn stendur yfir. Frá RÚV hefur ekki komið nein yfirlýsing um hvernig stofnunin ætlar að taka á málinu. Á hinn bóginn hafa nokkrir starfsmenn á fréttadeild látið af störfum fyrirvaralaust og án skýringa.
Leyndarhyggja er ráðandi á Efstaleiti. Ekki eru virtar eðlilegar leikreglur um miðlun upplýsinga stofnunar á framfæri ríkisins. Á stjórnarfundi 21. júní í ár var fjallað um starfsmannamál. Í fundargerð segir: ,,Kynntar voru upplýsingar um fjölda starfsmanna, stöðugilda og verktaka eftir mánuðum og heildargreiðslur til þessara hópa."
En það liggur ekkert fyrir á opinberum vettvangi um stöðugildi og verktaka. Það virðist einkamál útvarpsstjóra. Efstaleiti er lokaður heimur innvígðra sem stundar sjálftöku á opinberu fé og fer eftir lögum og reglum landsins aðeins þegar hentar.
Almenningur ætti að eiga val hvort hann kaupi áskrift af RÚV.
![]() |
Ríkismiðill með belti og axlabönd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)