Föstudagur, 20. október 2023
Trúarstríđ, bandalag íslam og vinstrimanna
Ţýskt stéttafélag lögreglumanna segir trúarstríđ geisa á götum Berlínar, höfuđborgar Ţýskalands. Dálkahöfundur Telegraph segir ,,sjúklegt" gyđingahatur á vesturlöndum.
Tilefni trúarstríđsins og gyđingahatursins er átök Ísraela og Hamas. Ţau hófust 7. október međ fjöldamorđum Hamas á almenningi í Ísrael.
Margir múslímar telja átökin vera á milli trúarsannfćringar, íslam annars vegar og hins vegar gyđingdóms. Víđa í Vestur-Evrópu eru fjölmenn samfélög múslíma, t.d. í Berlín.
Margir vestrćnir vinstrimenn líta svo á ađ Ísrael sé nýlenduveldi er sitji yfir hlut araba í landinu helga. Pólitík bćtist viđ landlćga gyđingaandúđ.
Bandalag íslam og vinstrimanna býr til pólitíska orku sem má leysa úr lćđingi međ falsfréttum ađ Ísraelar stundi fjöldamorđ s.s. međ árás á sjúkrahús.
Ísraelsríki var stofnađ 1948. Yfirstandandi átök eru ekki ólík mörgum fyrri í 75 ára sögu Ísrael.
Mótmćlin til stuđnings Hamas síđustu daga í Vestur-Evrópu gefa til kynna ađ bandalag múslíma og vinstrimanna sé sterkara en áđur.
Almennt eru vestrćnir vinstrimenn ekki trúađir, fremur halla ţeir sér ađ guđlausri veraldarhyggju. Ef dćmigerđur vinstrimađur yrđi ađ velja sér búsetu og valiđ stćđi á milli Ísrael eđa múslímaríkis, t.d. Egyptalands, Írak eđa Íran, myndi sá dćmigerđi velja Ísrael sem byggir á vestrćnum gildum.
Múslímar á vesturlöndum kjósa vestrćn lífskjör en hafna samfélögum ţar sem íslam rćđur ríkjum. Almennt eru lífsgćđin síđri í múslímaríkjum og mannréttindi í skugga trúarsetninga.
Ţađ sem sameinar múslíma og vinstrimenn, fyrir utan gyđingaandúđ, er hatriđ á vestrćnum gildum og lífsháttum. Mótsögnin er ađ hvorugur hópurinn, múslímar og vinstrimenn, vilja vera án vestrćnna lífsgćđa.
Svo vill til ađ á íslensku var á 13. öld skrifađ um sálarástand vestrćnna múslíma og vinstrimanna. Greiningin er lögđ í munn blóđţyrstrar konu sem ellimóđ sagđi forvitnum syni sínum hver stćđi hjarta hennar nćst af föllnum ástmönnum. ,,Ţeim var ég verst er ég unni mest."
![]() |
65 lögregluţjónar sćrđir í Berlín: Brenniđ allt |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)