Kona barnaði karl

Kona barnaði karl, sem gekk með fóstrið í 24 mánuði. Er nýburinn kom í heiminn var hann miðaldra hvítur karlmaður. Við ljósmóðurina segir miðaldra barnið:

Ég lít kannski út eins og miðaldra hvítur karl. Í reynd er ég þeldökk kona á óræðum þrítugsaldri. Vinsamlega skráðu mig rétt í fæðingardagbókina. Gemmér svo eitthvað að drekka og hafðu það áfengt. Ég á erfitt líf fyrir höndum verandi getin af konu og fædd af karli og mér er vorkunn. Kallaðu svo í blaðamann. Á eftir vímu er sýnileiki það brýnasta í lífinu. Spegill opinberrar umræðu gerir ímyndun mína trúverðuga.

Ljósmóðirin reiddi óðara fram tvöfaldan vodka í kók handa nýburanum og samsinnti að fjölmiðlar væru bráðnauðsynleg skolpveita ósanninda. Lífið væri hvort eð er áfeng lygi.

 

 


Bloggfærslur 18. október 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband