Viðbrögð við gyðingahatri á Íslandi

Fróðlegt verður að sjá viðbrögð íslenskra stjórnvalda við staðfestum dæmum um gyðingahatur hér á landi. Bæði forsætisráðuneytið og ráðhús Reykjavíkur reka sérstakar mannréttindaskrifstofur er gagngert hafa það hlutverk að fjalla um hatur og mismunun gagnvart minnihlutahópum.

Um 200 gyðingar munu vera hér á landi. Eftirfarandi er haft eftir Finni Thorlacius Eiríkssyni talsmanni menningarfélags gyðinga.

Hatursorðræða gegn gyðingum er svolítið stikkfrí. Fólk sem berst gegn hatursorðræðu þegir oft þegar það verður vitni að hatursorðræðu gegn gyðingum

Má ekki búast við Katrín forsætis og Dagur borgarstjóri láti til sín taka og virkja mannréttindadeildirnar til að álykta og efna til funda um gyðingaandúð? Verða ekki fluttir inn fyrirlesarar til að setja elsta og ofstækisfyllsta hatur á minnihlutahópi í sögulegt samhengi?

Líklega ekki.

Stórir hópar frjálslyndra vinstrimanna á vesturlöndum styðja hryðjuverk Hamas og íslamista. Fléttast þar saman rómantík frjálslyndra vinstrimann gagnvart skæruliðum og ofbeldismenningu annars vegar og hins vegar gyðingaandúð.

Meintir íslenskir sérfræðingar í hatursorðræðu sjá í gegnum fingur sér er hatrið beinist að hópum sem þeir sjálfir hafa ímugust á. Öll hugmyndafræðin í kringum hatursorðræðuna snýst einmitt um að virkja hatur í þágu pólitískra markmiða.


mbl.is Gyðingaandúð vandamál á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. október 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband