Afsögn Bjarna og siðferði Kristrúnar

Afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra vegna álits umboðsmanns alþingis setur ný viðmið í pólitík um hæfi til að fara með opinbert vald. Lykilsetningar í yfirlýsingu Bjarna eru eftirfarandi

Stundum er sagt að lítil þúfa velti þungu hlassi og í þessu tilviki snýst málið um þátttöku eins aðila, sem er mér nákominn, í útboði við sölu Íslandsbanka. Í heild voru þátttakendur í útboðunum tveimur um 24 þúsund.

Það er óumdeilt að ég hafði ekki upplýsingar um þátttöku félagsins. Það kemur mér því verulega á óvart að komist sé að þeirri niðurstöðu að mig hafi brostið hæfi í málinu.

og

Ég vil taka af allan vafa um að ég tel mikilvægt að virða álit Umboðsmanns Alþingis, sem er sérstakur trúnaðarmaður þingsins, þótt ég hafi á því þessar skoðanir. Álit hans er að mig hafi brostið hæfi í málinu. Ég virði þá niðurstöðu.

Stutta útgáfan: faðir Bjarna fjármálaráðherra keypti óverulegan hlut í útboði á hlutfé Íslandsbanka og Bjarni segir af sér.

Kristrún Frostadóttir varð uppvís að skattaundanskoti vegna 100 milljón króna hagnaðar af kauprétti á hlutafé í Kviku banka. Hún hefur þegar játað verknaðinn, en ekki lagt fram nein gögn til að upplýsa málið. Formaður Samfylkingar lítur svo á að skattaundanskot sé einkamál geranda. Þolendur eru íslenskur almenningur, breiðu bökin sem bera þunga skattbyrði. Áður hafði Kristrún þverneitað skattaundanskotum og kallað hagnaðinn ,,lukkupott" sem væri undanþeginn tekjuskatti.

Kristrún segir í viðtengdri frétt að rétt hafi verið af Bjarna að segja af sér. Þar með viðurkennir hún að þegar vafi leikur á siðferðilegri háttsemi stjórnmálamanns eigi viðkomandi að axla ábyrgð. 

Ætlar Kristrún að sitja áfram?


mbl.is Rétt ákvörðun hjá Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. október 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband