3 metsöluhöfundar: er guð til?

Höfundarnir Tom Holland, Douglas Murray og Stephen Meyer eiga metsölubækur á ferlisskránni. Vel að merkja fyrir fræðibækur, ekki skáldskap. Þremenningarnir hittust í viðtalsþætti til að ræða spurninguna er guð til?

Guð er dauður, sagði Nietzsche fyrir 140 árum. Hvað eru menn að tala um uppreist æru drottins nær hálfri annarri öld síðar? Eru vísindin ekki búin að afgreiða málið?

Ástæða spurningar um tilvist almættisins er þríþætt. Tveir þættir eru vísindalegir en þriðji er menningarþáttur. Samkvæmt Meyer eru tvær meginstoðir vísinda um tilurð heimsins annars vegar og hins vegar um þróun lífs á jörðinni ekki eins traustar og af er látið. Meyer er ekki einn um þessa sannfæringu. Hann talar aftur hátt og skýrt á meðan aðrir muldra í hálfum hljóðum. Sá almáttugi hefur ekki verið í tísku um árabil og þeir sem orða tilvist hans þykja hjárænulegir í upplýstum selskap. 

Stutta sagan er að miklihvellur, upphaf alheimsins, svarar ekki spurningunni hvað kom á undan. Hvellurinn hlýtur að verða til úr efni og orku, annars kemur andi (guð) til sögunnar. Að sama skapi riðar þróunarkenning Darwins til falls. Gögnin vantar um þróun frá einföldu lífi til flókins. Tölfræðigreining sýnir að stökkbreytingar á lífsformum, kjarni þróunarkenningarinnar, séu nær óhugsandi. Ef Darwin stenst ekki er nærtækt að tala um hönnun. Engin hönnun er án höfundar. 

Vísindin um upphaf alheims og lífs á jörðu eru sérgrein Meyer, sem er menntaður í náttúruvísindum og sagnfræði, er vísindasagnfræðingur. Bókin hans, um guðstilgátuna, er rökrétt framhald af fyrri verkum þar sem viðurkennd vísindi voru rýnd í ljósi spurninga um upphaf. Vísindin, samkvæmt lestri Meyer, standa á gati.

Murray og Holland eru þaulreyndir handverksmenn á menningarakrinum, annar blaðamaður en hinn sagnfræðingur. Murray sérhæfir sig í samtímamálum en Holland er fornfræðingur með sérþekkingu á grískri og rómverskri sögu. Nýleg bók þess síðarnefnda, um áhrif kristni á vestræna sögu- og menningu, er að sumu leyti undanfari bókar Meyer. Í viðtalsþættinum segja tvímenningarnir, meira óbeint en beint, að menningin kalli á nýja undirstöðu, afstæðishyggjan hafi gengið sér til húðar. Sá þriðji, Meyer, játar kristni og telur undirstöðuna einboðna.

Er guð að rísa upp frá Nietzsche-dauða? Hvaða guð yrði það? Sá kristni? Ómögulegt að segja. Einhver ókyrrð er í djúpi umræðunnar sem kannski gerir meira en að gára yfirborðið.  


Bloggfærslur 18. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband