Samherjafrétt á Glæpaleiti

Laust fyrir hádegi í gær loguðu fjölmiðlar á Íslandi. Allir sem einn stukku á stórfréttina um ófrið í Flokki fólksins. Stórkanónur blaðamanna, Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi á vísi.is skrifuðu saman frétt. Allir miðlar uppfærðu reglulega stærsta fréttamálið.

RÚV, eins og oft áður, var senuþjófurinn. Fyrsta fyrirsögnin af óeirð í Flokki fólksins norðan heiða var þessi

Segir konur sæta niðrandi framkomu af hálfu samherja

Blaðamanninn klæjaði í fingurna að setja stórt ess á síðasta orðið í fyrirsögninni. Samherji og fréttir af vondslegri veröld eru samheiti á fréttastofu sakborninga. Fyrirsögn annarrar útgáfu fréttarinnar varð:

„Sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar“

Fyrirsögnin endurspeglar hugarástandið á Glæpaleiti. Aðeins á yfirborðinu er fréttin um ástandið í fjöldahreyfingu Ingu Sæland.

Það verður ekki logið á íslenska blaðamenn. Alltaf eru þeir með fingurinn á púlsinum að lesa tifið í þjóðarsálinni.

Íslenskir blaðamenn eiga auðvelt með að skilja hismið frá kjarnanum (lítið ká).

Allt sem viðkemur ati í smáflokki er stórfrétt.

Ekkert er frétt sem viðkemur líkamsárás með byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og misnotkun á andlega veikum. Einkum og sérílagi ef blaðamenn eru sakborningar

Íslensk blaðamannastétt er tröll að vitsmunum og dómgreind. 

 

 

 


mbl.is Miður sín vegna málsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. september 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband