Föstudagur, 22. júlí 2022
Trump sýknaður en samt sekur
Trump þáverandi forseti stjórnaði ekki atlögunni 6. janúar 2021 að þinghúsinu í Washington. Ekki frekar en að Pútín Rússlandsforseti hafi tryggt kjör Trump haustið 2016. Stórar ásakanir en ósannar.
Andstæðingar Trump segja hann ekki njóta trausts. Rökin eru þau að þótt Trump sé saklaus eru ásakanir svo alvarlegar að ótækt sé að Trump fái kjör á ný, jafnvel þótt hann hafi til þess kjörfylgi.
Málflutningurinn er tímanna tákn. Saklausir menn eru sekir ef ásakanir eru nógu stórar.
![]() |
Fylgdist með árásinni í sjónvarpinu og gerði ekkert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)