Föstudagur, 18. mars 2022
Ofbeldi: Frosti játar og víkur, Aðalsteinn neitar og situr
Ólíkt hafast þeir fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Aðalsteinn Kjartansson. Sá fyrrnefndi játar andlegt ofbeldi, sem aðeins tveir eru vitni að, en sá síðarnefndi neitar aðild að byrlun og gagnastuldi sem lögregla hefur upplýst.
Manneskja sendi, af fúsum og frjálsum vilja, myndir til Frosta sem notaði þær til að hóta smánun. Aðalsteinn fékk sent stolin einkamál frá manni sem lá á milli heims og helju í gjörgæslu og notaði til að auðmýkja og niðurlægja. Frosti hótaði, Aðalsteinn framkvæmdi.
Aðalsteinn vissi með 4 daga fyrirvara um atlöguna að heilsu og einkahögum Páls skipstjóra. Hann fluttist af RÚV á Stundina gagngert til að koma þýfi í umferð, einkamálum úr síma skipstjórans. Aðalsteinn kallar það rannsóknablaðamennsku; svipað og að strætisróni segðist heilbrigð sál í hraustum líkama.
Frosti fer í ótímabundið leyfi ótilkvaddur en Aðalsteinn hangir eins og hundur á roði á sínu og segir í viðtali við mbl.is:
Ég hef ekkert að fela í þessu máli enda viðurkennir lögreglan að hún hafi ekkert í höndunum sem bendir til þess að það hafi yfir höfuð verið glæpur framinn, hvað þá að ég hafi framið einhvern glæp.
Fyrst enginn glæpur var framinn hlýtur Aðalsteinn að mæta galvaskur í kaffispjall hjá lögreglunni án lögfræðings. Síðustu fréttir herma á hinn bóginn að Aðalsteinn vilji að hæstiréttur úrskurði að blaðamannaskírteinið veiti friðhelgi til að fremja glæpi s.s. að byrla og stela.
Frosti var knúinn til að segja af sér stjórnarsetu í Blaðamannafélagi Íslands. Aðalsteinn er þar varaformaður og vildi Frosta burt. Aðalsteinn situr áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Munurinn á Frosta og Aðalsteini er að sá fyrrnefndi biðst afsökunar á andlegu ofbeldi. Sá síðarnefndi forherðist í þeirri afstöðu að hafa fullan rétt til að auðmýkja og niðurlægja þótt það brjóti bæði gegn almennum hegningarlögum og almennu siðferði.
![]() |
Frosti í ótímabundið leyfi frá störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)