Stóra enduræsingin, vinstriauðvaldið

The great reset, stóra endurræsingin, er kenning, sumir segja samsæriskenning, um að alþjóðaelítan noti Kínaveiruna til stokka upp vesturlönd í þágu hugmyndafræði um samfélagslega ábyrgð. Eitt slagorðið er ,,Endurbyggjum á betri hátt." Telegraph útgáfan, sem er borgaraleg og ekki ýkja samsærishneigð, tók saman nokkur stórmenni sem nota slagorðið.

Lykilhugtak í endurræsingunni er ESG, sem á útlensku stendur fyrir Environmental, Social, Governance. Undir formerkjum ESB er fjárfestingum stjórnað af ,,samfélagslegri ábyrgð". Ein kennisetning ESG er að trúa á hindurvitni eins og manngert veðurfar.

ESG er komið til Íslands. Kauphöllin flaggar hugmyndinni. Íslensk fyrirtæki kaupa sér ímynd með auglýsingaherferðum um lágt kolefnispor. En það er snar þáttur í kenningunni um  samfélagslegri ábyrgð. Við erum komin á sérkennilegar slóðir þar sem vinstrimenn og viðskiptalífið fallast í faðma.

Einn af höfuðandstæðingum stóru endurræsingarinnar er Glenn Beck. Í 45 mín. spjalli á Rubin report hvetur hann almenning að spyrna við fótum.

Hægrimaðurinn Glenn Becek boðar andóf gegn stórfyrirtækjum, bankakerfinu og alþjóðlegu lyfjarisunum. Kaupið af smákaupmönnum, geymið peningana í sparisjóðum og búið frekar í sveit en borg er ráðleggingin. Vinstrimenn, undir merkjum samfélagslegrar ábyrgðar, tala máli auðvaldsins, eins og það hét í gamla daga. Vinstriauðvaldið er ekki mótsögn heldur veruleiki.

Það sem sameinar vinstrimenn og viðskiptalífið er trú á það sem ekki er. Manngert veðurfar og bólusetning úr farsótt, með tilheyrandi rafrænu eftirliti, helst í hendur við aftengingu mannheima frá náttúrulegu umhverfi. Þeir sem hafna trúarkenningunni eiga á hættu að vera stimplaðir hryðjuverkamenn. Altæk hugmyndafræði helst í hendur við alræði. Gerði það bæði hjá kommúnistum og nasistum. Sama gildir um samfélagslega ábyrgð í stóru endurræsingunni.

Loftslag breytist af náttúrulegum orsökum. Veirufaraldrar eru jafngamlir Neandertalsmanninum. Nýtt er trú á að maðurinn stjórni náttúrulegum ferlum. Í stað kristna guðs fermingarfræðslunnar sitjum við uppi með manninn sem hálfguð. Og sá er vinstrivillingur sem lemur til hlýðni borgaralega fríþenkjara.

Trúin er ópíum fólksins, sagði Karl gamli Marx. Forsendan til að skilja trú, bætti sá gamli við, er að átta sig á að hún er manngerð. Náttúran er ekki mannanna verk, en trúin er það. Með þá vitneskju í farteskinu getum við hafnað ESG og stóru endurræsingunni - í góðri trú.


Bloggfærslur 12. febrúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband