Reynir afhjúpar sjálfan sig

Stolin gögn úr tölvu Reynis Traustasonar ritstjóra Mannlífs myndu varpa ljósi á samskipti við auðmenn. Reynir er vanur að vera ýmist vinur eða óvinur auðmanna. Hann kallar sig blaðamann en starfar eins og almannatengill. Mest fyrir sjálfan sig en gerist vikapiltur annarra þegar harðnar á dalnum.

Fræg er upptakan af samtali Reynis við blaðamann sinn, Jón Bjarka Magnússon, þar sem Reynir segist skrifa fréttir eða þegja þær eftir því hvaða auðmaður á hönk upp í bakið á honum hverju sinni. 

Fjölmiðlar hljóta að birta stolin gögn frá Reyni sem fara í umferð. Fjölmiðlar eins og RÚV, Stundin og Kjarninn telja sjálfsagt að nýta illa fengin gögn, jafnvel hafa hönd í bagga við öflun þeirra, sbr. mál Páls skipstjóra Steingrímssonar. Stolin gögn frá Reyni eru samkvæmt þessu viðmiði fréttir.

Reynir spilar sig hetju í trausti þess að almenningur trúi að meint innbrot sé ekki sviðsett. Prófsteinn er hvort stolnu gögnin komast í umferð. Meintir óvildarmenn Reynis hljóta að nýta sér upplýsingarnar, annars væri innbrotið tilgangslaust. Ef engar upplýsingar dúkka upp er ritstjórinn í öngstræti. Trúverðugleiki innbrotsins er í hættu.

Hafi innbrotið verið framið af óvildarmönnum ritstjórans hljóta fréttir af Reyni ritstjóra og samskiptum hans við auðmenn að birtast í fjölmiðlum næstu daga. Annars gæti aumingja Reynir lent í þeirri stöðu að dreifa óhróðri um sjálfan sig. Til að halda stöðu sinni sem trúverðugur þolandi innbrots.

Þriðji möguleikinn er að lögreglan upplýsi málið og hvatir er liggja að baki. Furður og stórmerki gætu komið á daginn.

 


mbl.is Hafi fengið tugi milljóna fyrir níðskrif um Róbert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. janúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband