Mánudagur, 6. september 2021
Svartur Trump
Larry Elder segir svarta meiri rasista en hvíta. Sjálfur er Elder svartur og á möguleika að verða næsti ríkisstjóri Kaliforníu, segir í Telegraph.
Vandamál svartra í Bandaríkjunum, hefur Elder sagt í áratugi, er að opinber aðstoð verðlaunar einstæðar mæður og þeldökkir karlmenn eru óábyrgir.
Elder er sennilega til hægri við Trump. Hann vill valkosti í skólamálum, boðar sígilt einstaklingsfrelsi en herferð gegn glæpum og eiturlyfjaglæpum sérstaklega.
Hér er viðtal við Larry Elder.
Kosningarnar eru 14. september, ef einhver lesandi skyldi hafa atkvæðisrétt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. september 2021
Sósíalistar taka fylgi af Pírötum
Píratar gera það jafnan gott í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga. Fylgið skreppur saman á kjördag. Sósíalistar hirða könnunarfylgið af Pírötum kortéri fyrir kosningar.
Sameiginlegt stef sossa og sjóræningja er að Ísland sé ónýtt. Sósíalistar boða vargöld fái þeir fylgi. Píratar lofa baráttu við loftslagið.
Jaðarfólkið sem hrifið er af ónýta Íslandi kýs fremur vargöld en loftslagsvá.
![]() |
Fylgi framboða í járnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. september 2021
Eitraður femínismi og forsetinn
DV greinir frá, og hefur eftir forsetaritara, að forseti Íslands, Guðni Th., hafði af því áhyggjur hverjir sætu við hlið forseta í heiðursstúkunni. ,,Í ljósi aðstæðna vildi forseti heyra hvaða hugmyndir væru uppi um sætaskipan..."
Af ótta við að fá yfir sig holskeflu hatursorðræðu er forsetinn var um sig og teflir á tæpasta að sitja í heiðursstúku á landsleik. Það sem áður var heiður er nú skömm.
Líklega verður bið á því að forsetinn þori að taka í höndina á leikmönnum sem spila fyrir hönd Íslands.
Það kæmi ekki á óvart að strákarnir okkar hættu að gefa kost á sér í landsliðið. Það er hvort eð er valið af Stígamótum.
![]() |
Kölluðu leikmenn landsliðsins nauðgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |