Þriðjudagur, 28. september 2021
Píratar vinna ekki þegar traust ríkir, heldur óreiða
Kosningabarátta Pírata gekk út á að Ísland væri í helgreipum spillingar. Eftir kosningar er haldið áfram með sama sönginn.
Fyllilega trúverðugar skýringar hafa komið fram á talningamistökum í NV-kjördæmi. En Píratar sjá eintóma spillingu.
Píratar vita sem er að þeirri tími kemur með óreiðu, tortryggni og hatri. Þess vegna sá þeir fræjum óreiðu, tortryggni og haturs.
![]() |
Hvar endar þetta? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 28. september 2021
Fréttablaðið til sölu, Gunnar Smári líklegur
Sósíalistinn Gunnar Smári er kominn með fullar hendur fjár eftir misheppnað framboð til alþingis. Framboð með yfir 2,5% fylgi fá fjárframlög úr ríkissjóði. Gunnar Smári hyggst reyna fyrir sér á ný í fjölmiðlun.
Í sumar birtust lausafregnir að Helgi Magnússon eigandi Fréttablaðsins leitaði að kaupendum. Gunnar Smári hefur áður lýst yfir áhuga að kaupa með því að tala verðið niður.
Á tíma útrásar rak Gunnar Smári Fréttablaðið fyrir Jón Ásgeir Baugsstjóra. Þá var hann kapítalisti og sigldi öllu í gjaldþrot sem hann kom nálægt. Sósíalistinn Gunnar Smári mun auðvitað endurreisa Fréttablaðið rauða fánans. Sósíalistar kunna svo vel að reka fyrirtæki. Eins og dæmin sanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. september 2021
Móðursjúkir vinstrimenn reyndu atlögu
Við kunnum ekki að telja, við getum ekki lýðræði, við lifum í botnlausri spillingu kyrjuðu móðursjúkir píratar, sósíalistar, vinstri grænir og samfóistar síðdegis í gær - og vildu ógilda nýafstaðnar kosningar.
Móðursjúka fólkið er stútfullt af sjálfshatri sem það yfirfærir á þjóðina af minnsta tilefni.
Kostulegt er að fylgjast með þessum eymdarsálum misheppnaðra mannkynsfrelsara sem geta ekki sameinast nema í brjálæðiskasti.
Vinstrimenn eru sundraðir sem aldrei fyrr. Þeir buðu fram fjóra framboðslista. Eini flokkurinn sem lyfti sig yfir tíu prósentin er sá sem starfar með borgaralegum flokkum.
Vinstri viðrinin eru útilokunarflokkar. Píratar útilokuðu Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkingin sömuleiðis og Sósíalistaflokkurinn alla aðra en sjálfan sig.
Á kjördag svaraði þjóðin fyrir sig og dæmdi 75% vinstriflokkanna til áhrifalausrar sérvitringatilveru á jaðri stjórnmálanna. Þar situr eymdarliðið og bruggar samborgunum sínum launráð, tilbúið að efna til múgæsingaratlögu af minnsta tilefni. Eins og í gær.
![]() |
Endurtalning leiddi í ljós sömu niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)