Mjólka Kolla, svo Sigga

Það gefur vel í aðra hönd að vera þolandi.


mbl.is Segist ekki hafa séð kærurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meintur sósíalisti, staðfestur kapítalisti, 100% loddari

Það er staðfest að Gunnar Smári foringi sósíalista var kapítalisti. Hann vildi einkavæða heilbrigðiskerfið eins og bankakerfið. Hann fór illa með launþega, m.a. blaðburðabörn.

Kapítalismi Gunnars Smára er staðfestur í bak og fyrir með orðum og gerðum hans sjálfs.

Gunnar Smári var virkur fjárfestir og átti hlutafé upp á hundraði milljóna króna í einkavæddum bönkum, í fjölmiðlum Baugs og víðar. Hann langaði í meira. Svo kom hrunið og gjaldþrota kapítalistinn ginnti til sín auðtrúa vinstriróttæklinga með sósíalísku slagorðanammi.

Eftir kosningar veit enginn hvaða sannfæringu Gunnar Smári fylgir. Spurningin er aðeins hvort sósíalistaforinginn og loddarinn verði á kaupi almennings við að delera sem þingmaður lýðveldisins.


mbl.is „Lítill ævisparnaður“ Gunnars 600 milljónir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband