Útlendingar á bakvið 25% glæpa á Íslandi

Í nýrri ársskýrslu ríkissaksóknara kemur fram á bls. 15 að útlendingar fremja um 25 prósent glæpa á Íslandi, sé miðað við útgefnar ákærur. Samkvæmt þjóðskrá eru innflytjendur aðeins 15 prósent íbúa landsins.

Hér hefur eitthvað farið úrskeiðis. Við höfum tekið á móti of mörgum útlendingum miðað við getu okkar að siða þá til.

Ef allt væri með felldu ættu útlendingar ekki að standa að baki nema um 15 prósent glæpa. En þeir eru 25 prósent afbrotamanna.


mbl.is Segir að morðið hafi verið hrein og klár aftaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Logi: ESB-stjórn með sósíalistum

Margt sameinar Samfylkingu og Viðreisn, segir Logi formaður. Áður hafa efstu menn á listum Samfylkingar lýst áhuga að fá sósíalista í vinstristjórn.

Vinstristjórn Jóhönnu Sig. sótti um aðild að Evrópusambandinu og splundraði þjóðinni. Sú umsókn liggur ofan í skúffu í stjórnarráðinu og afrit hennar er í Brussel. Logi og Þorgerður Katrín, bæði ákafir ESB-sinnar, hyggjast endurnýja innlimunarferli Íslands inn í ESB.

Kjósendur vita að hverju þeir ganga á laugardag.


mbl.is „Margt sem sameinar okkur Þorgerði Katrínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband