Þriðjudagur, 21. september 2021
Gunnar Smári og blaðburðabörnin
Gunnar Smári bakaði ekki pönnsur handa blaðburðabörnum Fréttablaðsins þegar hann réð þar ríkjum í umboði Jóns Ásgeirs í Baugi. Nei, þá réð ferðinni harður kapítalismi. Sigurður Már Jónsson blaðamaður rifjar upp þessa sögu í Fjölmiðlanördum. Sigurður Már skrifar
Það var ekki bara þungi og lág laun sem gerði blaðburðarfólki erfitt fyrir. Þeim var einnig gert að dreifa fjölda auglýsingabæklinga með Fréttablaðinu fyrir litla sem enga umbun. Gunnar Smári hreykti sér af þessari lausn gagnvart fjárfestum. Þessi viðbótarútburður jók vinnuálagið verulega. Það kom iðulega fyrir að bæklingarnir, sem settir voru í dreifingu til viðbótar við Fréttablaðið, voru þyngri en blaðið sjálft.
Og ennfremur:
Þarna gerðist það að núverandi foringi sósíalista jók áþján blaðburðarbarna verulega og rýrði kjör þeirra um leið. Þá lét hann þau kenna á grimmd kapítalismans eins og hann birtist í kennitöluflakki og gjaldþrotum en þau áttu lítil sem engin réttindi gagnvart Ábyrgðasjóði launa sem oft þurfti að stíga inn vegna rekstrar tengdum Gunnari Smára. Ég man það vel að þegar fyrra rekstrarfélag Fréttablaðið fór í þrot mátti finna reiða foreldra víða í Þverholtinu, þar sem ég vann á þeim tíma, í leit að einhverjum ábyrgðamanni.
Hvar var Gunnar Smári þegar launafólk, börn, aldraðir og öryrkjar fengu ekki launin sín? Jú, lagður á flótta á vit nýrra ævintýra. Hann komst í sjóði verkalýðshreyfingarinnar og fær þar fjármagn til að reka flokk sósíalista.
Gunnar Smári bakar núna pönnukökur í matardálki netútgáfu Mogga og býst við að verða þingmaður á laugardag.
Hagfræðingur og faðir blaðburðabarns Fréttablaðsins frá tíma Gunnars Smára bar saman kjör þeirra sem báru út Mogga annars vegar og hins vegar Fréttablaðið. Kjör blaðbera Fréttablaðsins voru 25 prósent lakari.
Sólveig Anna í Eflingu myndi kalla þetta launaþjófnað - ef einhver annar en Gunnar Smári ætti í hlut.
![]() |
Gunnar Smári tekur alþýðupönnukökurnar upp á næsta stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 21. september 2021
Gunnar Smári, kapítalisti í sósíalistagæru
Gunnar Smári foringi sósíalista vildi einkavæða heilbrigðiskerfið fyrir nokkrum árum. Hann skrifaði grein, ,,Betri þjónusta fyrir lægra verð," um að heilbrigðiskerfið ætti að fara sömu leið og bankakerfið - í hendur auðmanna.
Eyjan rekur samhengi málsins. Þar segir:
Fyrsta lína í stefnuskrá Sósíalistaflokks Gunnar Smára í heilbrigðismálum er nú: Að á Íslandi verði gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta rekin af skattfé borgaranna. Önnur línan er: Að unnið verði gegn allri markaðsvæðingu í heilbrigðisþjónustu og jafnvægi komið á þjónustuna miðað við þarfagreiningu.
Gunnar Smári hefur þá sannfæringu sem hentar hverju sinni. Kapítalisti í gær, sósíalisti í dag.
Hvaða sannfæringu hefur Gunnar Smári á morgun?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 21. september 2021
Samfylking: sósíalista í ríkisstjórn
Sósíalista í ríkisstjórn, segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem leiðir lista Samfylkingarinnar i Kraganum. Ekki sjens að við störfum með Sjálfstæðisflokknum, segir Helga Vala þingmaður Samfylkingar.
Þórunn vill ,,grípa til aðgerða." Og hverjir eru betur til þess fallnir en sósíalískir aðgerðasinnar.
Atkvæði greitt Samfylkingu er atkvæði með sósíalisma.
![]() |
Gætu ekki myndað þriggja flokka stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)