Fimmtudagur, 16. september 2021
Framsókn, Thunberg-ráðuneyti og alþjóðahyggja
Loftslagsráðuneyti er pólitískt markmið Framsóknarflokksins. Markmiðið er í anda Grétu Thunberg sem skrópaði í skóla og skildi loftslagsvísindi.
Jafnframt ætlar Framsókn, fái flokkurinn til þess umboð, að beygja Íslandi undir alþjóðahyggju Sameinuðu þjóðanna. ,,Framsókn vill að markvisst verði stefnt að því að uppfylla heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna..."
Alþjóðavofu ESB er búið að kveða í kútinn en nú skal blása lífi í aðra.
Einu sinni mátti treysta því að Framsóknarflokkurinn væri þjóðlegur með báða fætur á jörðinni.
Ekki lengur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 16. september 2021
4. orkupakkinn: Ísland rafhlaða fyrir ESB
Noregur er rafhlaða fyrir orkuskiptum Þýskalands, segir þýskur fjölmiðill. Þjóðverjar verða brátt að kaupa rafmagn frá Bretlandi, segir Telegraph.
Ísland er næst í röðinni að seðja orkuhungrað meginland Evrópu. Verkfæri Evrópusambandsins til að komast yfir íslenska raforku er orkupakkar.
Þriðji orkupakkinn var samþykktur af núverandi ríkisstjórn. Næst kemur fjórði og fimmti og áður en varir er Ísland ekki fullvalda þjóðríki heldur hjáleiga ESB, nýtt til raforkuframleiðslu.
Aðeins einn flokkur stóð í ístaðinu og hafnaði ásælni Evrópusambandsins. Miðflokkurinn.
![]() |
Íslenska orkan eftirsótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)